Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti

1042/2019

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 926/2015 um viðvarandi lofthæfi loftfara og flugtæknilegra framleiðsluvara, hluta og búnaðar og um samþykki fyrir viðhaldsstöðvum og starfsfólki á þessu sviði.

1. gr.

Markmið.

Markmið með innleiðingu reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/1142 er að skil­greina kröfur um skírteini fyrir viðhaldsvotta sem sinna vottun á ELA1 flugvélum og á öðrum loft­förum en þyrlum og flugvélum, þar sem gildandi kröfur miðast við viðhald á flóknum loftförum og eru óþarflega íþyngjandi fyrir þessi loftför.

2. gr.

Innleiðing.

Við 4. gr. reglugerðarinnar bætist stafliður d sem orðast svo:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/1142 frá 14. ágúst 2018 um breytingu á reglu­gerð (ESB) nr. 1321/2014 að því er varðar innleiðingu á tilteknum flokkum skírteina flugvél­tækna, breytingu á ferlinu við viðurkenningu íhluta frá utanaðkomandi birgjum og breytingu á heimildum viðhaldskennslu­fyrirtækja, eins og hún er tekin upp í EES-samninginn sbr. ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar nr. 193/2019 frá 10. júlí 2019. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 58, frá 18. júlí 2019, bls. 99-154.

3. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 7. mgr. 28. gr., sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998, með síðari breytingum, og öðlast þegar gildi.

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 13. nóvember 2019.

 F. h. r.

Sigurbergur Björnsson.

Ólafur Kr. Hjörleifsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica