2. mgr. 17. gr. orðast svo:
Ökuskírteini fyrir flokk C má einungis veita þeim sem hefur öðlast fullnaðarskírteini fyrir flokk B.
3. mgr. 17. gr. orðast svo:
Ökuskírteini fyrir flokk BE og flokk CE má einungis veita þeim sem hefur öðlast fullnaðarskírteini fyrir flokk B, eftir atvikum C.
2. mgr. 18. gr. orðast svo:
Ökuskírteini fyrir flokk D má einungis veita þeim sem hefur öðlast fullnaðarskírteini fyrir flokk B.
2. mgr. 19. gr. orðast svo:
Ökuskírteini til farþegaflutninga í atvinnuskyni má einungis veita þeim sem hefur öðlast fullnaðarskírteini fyrir flokk B og staðist ökupróf fyrir farþegaflutninga í atvinnuskyni.
Við 70. gr. bætist ný málsgrein sem verður 4. mgr., er orðast svo:
Ákvæði 1. og 2. málsgreinar þessarar greinar eiga ekki við um rétthafa gilds ökuskírteinis sem gefið hefur verið út í ríki sem er aðili að Evrópska efnahagssvæðinu eða í ríki sem samkvæmt samningi við EB hefur innleitt ákvæði tilskipunar nr. 91/439/EBE um ökuskírteini.
Eftirfarandi breytingar verða á undirkafla með fyrirsögninni Skilgreiningar í II. viðauka.
a. | Við 1. mgr. kemur nýr málsliður er orðast svo: |
Ökukennarar tilheyra þessum hópi. | |
b. | Við 1. mgr. kemur ný málsgrein er orðast svo: |
Þeir, sem fyrir 15. ágúst 1997 hafa öðlast ökuréttindi eða ökukennararéttindi, sbr. hóp 2, geta þó fengið endurnýjuð þau réttindi á grundvelli ákvæða um sjón sem voru í gildi í reglugerð fram að þeirri dagsetningu.
Í stað orðanna "skráningarstofu ökutækja" í 1. mgr. I. kafla III. viðauka kemur: Umferðarstofu.
Í stað orðanna "31. desember 1999" í 2. mgr. í undirkafla með fyrirsögninni Ástand ökutækis og búnaður í II. kafla III. viðauka kemur: 31. desember 2008.
Eftirfarandi breytingar verða á undirkafla með fyrirsögninni Ökukennslumerki, auglýsingar o.fl. í II. kafla III. viðauka:
a. | Í stað orðsins "Umferðarráð" kemur: Umferðarstofa. |
b. | 2. málsl. 2. mgr. fellur brott. |
Á undan 1. mgr. í undirkafla með fyrirsögninni Sjálfskipting í II. kafla III. viðauka kemur ný málsgrein er orðast svo:
"Ökutæki með sjálfskiptingu" merkir ökutæki þar sem einungis er hægt að breyta gírhlutfalli milli hreyfils og hjóla með eldsneytisgjöf eða hemlum.
4. mgr. í B. flokki B, III. kafla í III. viðauka orðast svo:
Ef bifreiðin er búin hallahemli skal hann vera aftengjanlegur.
III. kafla í III. viðauka orðast svo:
Vörubifreið a.m.k. 8,0 m að lengd, a.m.k. 2,4 m á breidd, a.m.k. 12.000 kg að leyfðri heildarþyngd og gerð fyrir a.m.k. 80 km/klst. hraða. Eigin þyngd vörubifreiðarinnar skal vera a.m.k. 10.000 kg.
Farmrýmið skal vera lokaður kassi sem er að minnsta kosti jafnbreiður og jafnhár og stýrishúsið.
Bifreiðin skal búin baksýnisspeglum fyrir ökukennara, í flokki II skv. reglugerð um gerð og búnað ökutækja, á báðum hliðum. Baksýn án úti baksýnisspegla skal ekki vera möguleg fyrir ökumann.
Bifreiðin skal búin læsivörðum hemlum, gírkassa með átta gírum áfram hið minnsta og ökurita samkvæmt reglugerð EBE nr. 3821/85.
Um aðrar sérkröfur gildir hið sama og fyrir flokk B.
Við verklega prófið skal bifreið vera með a.m.k. 50% af leyfðum farmþunga.
, III. kafla í III. viðauka orðast svo:
Hópbifreið a.m.k. 10 m að lengd og skráð fyrir a.m.k. 40 farþega. Bil milli ása skal vera a.m.k. 5,5 m og bifreiðin gerð fyrir a.m.k. 90 km/klst. hraða.
Hópbifreiðin skal búin læsivörðum hemlum og ökurita samkvæmt reglugerð (EBE) nr. 3821/85.
Bifreiðin skal búin baksýnisspeglum fyrir ökukennara, í flokki II skv. reglugerð um gerð og búnað ökutækja, á báðum hliðum.
Um aðrar sérkröfur gildir hið sama og fyrir flokk B.
, III. kafla í III. viðauka orðast svo:
- Flokkur BE:
Fólksbifreið í flokki B með tengdan eftirvagn/tengitæki að heildarþyngd a.m.k. 1.250 kg. Heildarþyngd samtengdu ökutækjanna skal vera meiri en 3.500 kg eða heildarþyngd eftirvagnsins/tengitækisins a.m.k. 200 kg meiri en eigin þyngd bifreiðarinnar.
Ökutækin skulu gerð fyrir a.m.k. 100 km/klst. hraða.
Farmrými eftirvagnsins/tengitækisins skal vera lokaður kassi sem er að minnsta kosti jafnbreiður og jafnhár og vélknúna ökutækið. Lokaði kassin má einnig vera lítið eitt mjórri en vélknúna ökutækið að því tilskildu að baksýn fáist eingöngu með úti baksýnisspeglum á vélknúna ökutækinu
- Flokkur CE:
Bifreiðin skal uppfylla allar kröfur til prófökutækja í flokki C aðrar en kröfur um lengd og farmrými. Festi- eða tengivang sem er a.m.k. 7,5 m að lengd skal notaður. Samtengdu ökutækin skulu vera a.m.k. 14 m að lengd, a.m.k. 2,4 m á breidd, a.m.k. 20.000 kg að leyfðri heildarþyngd og skulu gerð fyrir a.m.k. 80 km/klst. hraða.
Samanlögð eiginþyngd vagnlestarinnar skal vera að minnsta kosti 15.000 kg.
Farmrými eftirvagnsins skal vera lokaður kassi sem er að minnsta kosti jafnbreiður og jafnhár og stýrishúsið
Baksýn án úti baksýnisspegla skal ekki vera möguleg fyrir ökumann.
Við verklega prófið skulu ökutækin vera með a.m.k. 50% af leyfðum farmþunga.
- Flokkur DE:
Prófökutæki í flokki D með tengdan eftirvagn sem er a.m.k. 3.000 kg að leyfðri heildarþyngd og a.m.k. 2,4 m á breidd. Samtengdu ökutækin skulu gerð fyrir a.m.k. 80 km/klst. hraða.
Farmrými eftirvagnsins skal vera lokaður kassi sem er að minnsta kosti tveggja metra breiður og tveggja metra hár.
Baksýn án úti baksýnisspegla skal ekki vera möguleg fyrir ökumann.
Við verklega prófið skal eftirvagninn vera með a.m.k. 50% af leyfðum farmþunga.
Á 1. mgr. í lið I með fyrirsögninni Ökutæki fyrir fatlaða, III. kafla í III. viðauka verða eftirfarandi breytingar:
a. | Í stað orðsins "fatlaðan" kemur: hreyfihamlaðan og í stað orðsins "skráningarstofu" kemur orðið: Umferðarstofu. |
b. | Fyrirsögnin verður: I. Ökutæki fyrir hreyfihamlaða. |
VII. viðauki orðast svo:
Tákntölur í 2. og 3. tölulið tilgreina viðbótarupplýsingar, skilyrði og takmarkanir er varða handhafa ökuskírteinis og skulu færðar í dálk 12 á ökuskírteininu, að jafnaði aftan við þann réttindaflokk sem við á. Ef dálkurinn nægir ekki fyrir tákntölur skulu þær með tilvísun (*) færðar neðan við ökuréttindaflokkana og dálkana 9 - 11. Ef tákntala varðar alla réttindaflokka skal hún og færð neðan við ökuréttindaflokkana. Sama á við um tákntölur vegna stjórnsýslu.
Tákntölurnar eru annars vegar samræmdar tákntölur (1 - 99) sem gilda innan Evrópska efnahagssvæðisins og hins vegar innlendar tákntölur (100 og hærra) sem einungis gilda innan viðkomandi lands.
Lögreglustjóri ákveður, eftir atvikum á grundvelli tilmæla eða meðmæla læknis eða prófdómara, hvaða tákntölur, fyrir undirflokk ef við á, skal nota við útgáfu ökuskírteinis.
Tákntölurnar eru annaðhvort notaðar einar sér eða ásamt tákntölu fyrir undirflokk. Dómsmálaráðuneytið getur sett nánari leiðbeiningar um notkun tákntalna og undirflokka.
Tákntölurnar 72 - 79 skal nota við skipti á ökuskírteinum sem gefin hafa verið út í ríkjum sem eru aðilar að Evrópska efnahagssvæðinu, að því leyti sem hlutaðeigandi ökuskírteini er með undirflokk ökutækja í samræmi við tilskipun EB um ökuskírteini. Tákntölurnar 74 - 77 skulu með sama hætti notaðar við útgáfu nýs ökuskírteinis í stað eldra ökuskírteinis.
ÖKUMAÐUR (læknisfræðilegar ástæður)
01. | Leiðrétting sjónar og/eða vörn | |
01.01 | Gleraugu | |
01.02 | Snertilinsa (snertilinsur) | |
01.03 | Hlífðargleraugu | |
01.04 | Ógegnsæ linsa | |
01.05 | Augnhlíf | |
01.06 | Gleraugu eða snertilinsur | |
02. | Heyrnartæki/samskiptastoð | |
02.01 | Heyrnartæki við annað eyra | |
02.02 | Heyrnartæki við bæði eyru | |
03. | Gervilimur eða gervilimir/stoðtæki fyrir fætur og hendur/handleggi | |
03.01 | Gervilimur eða gervilimir/stoðtæki fyrir hönd-handlegg/hendur-handleggi | |
03.02 | Gervilimur eða gervilimir/stoðtæki fyrir fót/fætur | |
05. | Takmarkaður akstur (af læknisfræðilegum ástæðum) | |
05.01 | Takmarkað við akstur í dagsbirtu (t.d. frá einni klukkustundu eftir sólarupprás og þar til ein klukkustund er til sólseturs) | |
05.02 | Takmarkað við akstur innan ….. km radíus frá heimili skírteinishafa eða eingöngu innan bæjar/svæðis …. | |
05.03 | Takmarkað við akstur án farþega | |
05.04 | Takmarkað við akstur sem er ekki hraðari en ... km/klst. | |
05.05 | Akstur aðeins heimill þegar farþegi, sem er handhafi ökuskírteinis, er með í för | |
05.06 | Takmarkað við akstur án eftirvagns/tengitækis | |
05.07 | Akstur óheimill á hraðbrautum | |
05.08 | Ekkert áfengi | |
Aðlögun ökutækis | ||
10. | Aðlagaður gírkassi | |
10.01 | Beinskipting | |
10.02 | Sjálfskipting | |
10.03 | Rafstýrð skipting | |
10.04 | Aðlöguð gírstöng | |
10.05 | Takmörkun á fjölda gíra | |
15. | Aðlagaður tengslisbúnaður | |
15.01 | Aðlagaður tengslisfetill | |
15.02 | Beinstýrt tengsli | |
15.03 | Sjálfvirkt tengsli | |
15.04 | Hlíf framan við tengslisfetil eða tengslisfetill sem leggja má saman eða fjarlægja | |
20. | Aðlagaður hemlabúnaður | |
20.01 | Aðlagaður hemlafetill | |
20.02 | Stækkaður hemlafetill | |
20.03 | Hemlafetill fyrir vinstri fót | |
20.04 | Hemlafetill við il | |
20.05 | Skásettur hemlafetill | |
20.06 | Beinstýrður aksturshemill | |
20.07 | Aukin virkni aksturshemils - hámarks styrking aksturshemils | |
20.08 | Aukin virkni neyðarhemils - neyðarhemill sambyggður aksturshemli | |
20.09 | Aðlagaður stöðuhemill | |
20.10 | Rafknúinn stöðuhemill | |
20.11 | Fótstiginn stöðuhemill | |
20.12 | Hlíf fram við hemlafetil eða hemlafetill sem leggja má saman eða fjarlægja | |
20.13 | Hemill sem stjórnað er með hnénu | |
20.14 | Rafknúinn aksturshemill | |
25. | Aðlagaður búnaður fyrir eldsneytisgjöf | |
25.01 | Aðlagaður eldsneytisfetill | |
25.02 | Eldsneytisfetill við il | |
25.03 | Skásettur eldsneytisfetill | |
25.04 | Beinstýrð eldsneytisgjöf | |
25.05 | Eldsneytisgjöf stýrt með hné | |
25.06 | Eldsneytisgjöf með aflgjafa (t.d. rafmagni eða lofti) | |
25.07 | Eldsneytisfetill vinstra megin við hemlafetil | |
25.08 | Eldsneytisfetill vinstra megin | |
25.09 | Hlíf framan við eldsneytisfetil eða eldsneytisfetill sem leggja má saman eða fjarlægja | |
30. | Aðlagaður sambyggður hemlabúnaður og búnaður fyrir eldsneytisgjöf | |
30.01 | Fetlar hlið við hlið | |
30.02 | Fetlar í sömu eða nánast sömu hæð | |
30.03 | Eldsneytisgjöf og hemill sem renna má til | |
30.04 | Eldsneytisgjöf og hemill sem renna má til og með stoðtæki | |
30.05 | Eldsneytisfetill og hemlafetill sem leggja má saman eða fjarlægja | |
30.06 | Hækkað gólf | |
30.07 | Hlíf við hlið hemlafetils | |
30.08 | Hlíf fyrir gervilim við hlið hemlafetils | |
30.09 | Hlíf framan við eldsneytis- og hemlafetil | |
30.10 | Stuðningur við hæl og/eða fót | |
30.11 | Rafstýrð eldsneytisgjöf og hemill | |
35. | Aðlagað skipulag stjórntækja | |
(rofar fyrir ljósabúnað, rúðuþurrkur/-sprautur, flauta, stefnuljós o.s.frv.) | ||
35.01 | Beita má stjórntækjum án þess að það skerði öryggi við stjórnun og meðferð ökutækisins | |
35.02 | Beita má stjórntækjum án þess að sleppa þurfi stýrishjóli eða hjálpartækjum (hnúð, gaffalgripi o.s.frv.) | |
35.03 | Beita má stjórntækjum án þess að sleppa þurfi taki vinstri handar á stýrishjóli eða hjálpartækjum (hnúð, gaffalgripi o.s.frv.) | |
35.04 | Beita má stjórntækjum án þess að sleppa þurfi taki hægri handar á stýrishjóli eða hjálpartækjum (hnúð, gaffalgripi o.s.frv.) | |
35.05 | Beita má stjórntækjum án þess að sleppa þurfi stýrishjóli eða hjálpartækjum (hnúð, gaffalgripi o.s.frv.) og sambyggðum búnaði fyrir eldsneytisgjöf og hemlun | |
40. | Aðlagaður stýrisbúnaður | |
40.01 | Venjulegt aflstýri | |
40.02 | Aflstýri með auknu afli | |
40.03 | Stýri með varabúnaði | |
40.04 | Lengd stýrisstöng | |
40.05 | Aðlagað stýrishjól (stærra og/eða með þykkara gripi, með minna þvermáli o.s.frv.) | |
40.06 | Skásett stýrishjól | |
40.07 | Lóðrétt stýrishjól | |
40.08 | Lárétt stýrishjól | |
40.09 | Akstri stýrt með fótum | |
40.10 | Annars konar aðlögun stýrisbúnaðar (stýrispinni o.s.frv.) | |
40.11 | Hnúður á stýrishjóli | |
40.12 | Handspelka á stýrishjóli | |
40.13 | Með sinaspelku (orthes tenodes) | |
42. | Aðlagaður (-ir) baksýnisspegill/-speglar | |
42.01 | Úti-baksýnisspegill á (vinstri eða) hægri hlið | |
42.02 | Úti-baksýnisspegill á frambretti | |
42.03 | Auka inni-baksýnisspegill fyrir ökumann til að fylgjast með umferðinni | |
42.04 | Gleiðhorns-inni-baksýnisspegill | |
42.05 | Baksýnisspegill sem gerir ökumanni kleift að fylgjast með blinda svæðinu | |
42.06 | Rafstýrður úti-baksýnisspegill eða -speglar | |
43. | Aðlagað ökumannssæti | |
43.01 | Ökumannssæti komið fyrir í hæð sem veitir ökumanni góða útsýn og er í eðlilegri fjarlægð frá stýrishjóli og fetlum | |
43.02 | Ökumannssæti aðlagað lögun líkama ökumanns | |
43.03 | Ökumannssæti með stoð til beggja hliða til að auka stöðugleika | |
43.04 | Ökumannssæti með armhvílu | |
43.05 | Ökumannssæti komið fyrir á lengdri rennibraut | |
43.06 | Aðlagað öryggisbelti | |
43.07 | Öryggisbelti af H-gerð | |
44. | Aðlögun bifhjóls | |
44.01 | Báðum hemlum beitt með einu stjórntæki | |
44.02 | Handstýrður (aðlagaður) hemill fyrir framhjól | |
44.03 | Fótstýrður (aðlagaður) hemill fyrir afturhjól | |
44.04 | (Aðlagað) handfang fyrir eldsneytisgjöf | |
44.05 | (Aðlöguð) beinstýrð gírskipting og beinstýrt tengsli | |
44.06 | (Aðlagaður) baksýnisspegill eða -speglar | |
44.07 | (Aðlöguð) stjórntæki (stefnuljós, hemlaljós, …) | |
44.08 | Ökumannssæti er ekki hærra en svo að ökumaður nær samtímis með báðum fótum til jarðar þegar hann situr | |
45. | Einungis bifhjól með hliðarvagni | |
50. | Takmarkað við ökutæki/verksmiðjunúmer (verksmiðjunúmer ökutækisins) | |
51. | Takmarkað við tiltekið ökutæki/skráningarmerki (skráningarnúmer ökutækisins) | |
Stjórnsýsla | ||
70 | Skipt á erlendu ökuskírteini nr. ..... sem var gefið út af ..... (einkennisstafir ESB/SÞ fyrir þriðju lönd, t.d. 70. 0123456789.NL) | |
71 | Samrit ökuskírteinis nr. ....... (einkennisstafir ESB/SÞ fyrir þriðju lönd t.d. 71.987654321.HR) | |
72 | Takmarkað við ökutæki í flokki A með aflvél ekki yfir 125 rúmsentimetrar og vélarafl sem fer ekki yfir 11 kW (A1) | |
73 | Takmarkað við þrí- og fjórhjóla ökutæki í flokki B (B1) | |
74 | Takmarkað við ökutæki í flokki C með leyfðri heildarþyngd 7.500 kg eða minna (C1) | |
75 | Takmarkað við ökutæki í flokki D með sæti fyrir 16 farþega eða færri auk ökumanns (D1) | |
76 | Takmarkað við ökutæki í flokki C með leyfðri heildarþyngd 7.500 kg eða minna (C1) með tengdan eftirvagn/tengitæki sem er meira en 750 kg að leyfðri heildarþyngd, enda sé leyfð heildarþyngd beggja ökutækja 12.000 kg eða minna og leyfð heildarþyngd eftirvagnsins/tengitækisins ekki meiri en eigin þyngd dráttartækisins (C1E) | |
77 | Takmarkað við ökutæki í flokki D með sæti fyrir 16 farþega eða færri auk ökumanns (D1) með tengdan eftirvagn/tengitæki sem er meira en 750 kg að leyfðri heildarþyngd, enda sé: | |
a. | leyfð heildarþyngd beggja ökutækja 12.000 kg eða minna og leyfð heildarþyngd eftirvagnsins/tengitækisins ekki meiri en eigin þyngd dráttartækisins og | |
b. | eftirvagninn/tengitækið ekki notað til fólksflutninga | |
(D1E) | ||
78 | Takmarkað við ökutæki með sjálfskiptingu | |
(Tilskipun 91/439/EBE með síðari breytingum, 2. mgr. í lið 8.1.1 í II. viðauka) | ||
79 | Takmarkað við ökutæki sem skilgreint er í sviga í samræmi við ákvæði 1. mgr. 10. gr. tilskipunarinnar. |
90.01: til vinstri
90.02: til hægri
90.03: vinstri
90.04: hægri
90.05: fyrir hönd
90.06: fyrir fót
90.07: má nota
Tákntölur í þessum lið skulu jafnan færðar í dálk 12 neðan við ökuréttindaflokkana. Aftan við tákntölurnar skal innan sviga tilgreina lokadag réttindanna. Þessar tákntölur hafa einungis gildi hér á landi.
400 | Skírteinishafi hefur ökuskírteini til farþegaflutninga í atvinnuskyni fyrir flokk B |
425 | Skírteinishafi hefur ökuskírteini til farþegaflutninga í atvinnuskyni fyrir flokk D (eftir atvikum D1) |
450 | Skírteinishafi hefur ökuskírteini til farþegaflutninga í atvinnuskyni fyrir flokkana B og D (eftir atvikum D1) |
500 | Skírteinishafi er löggiltur ökukennari vegna réttindaflokksins B. |
525 | Skírteinishafi er löggiltur ökukennari vegna réttindaflokkanna A og B. |
530 | Skírteinishafi er löggiltur ökukennari vegna réttindaflokkanna B, C og E (Ökukennararéttinda til réttindaflokks B aflað fyrir 2000) |
540 | Skírteinishafi er löggiltur ökukennari vegna réttindaflokkanna A, B, C og E (Ökukennararéttinda til réttindaflokks B aflað fyrir 2000) |
550 | Skírteinishafi er löggiltur ökukennari vegna réttindaflokkanna B, C, D og E. |
575 | Skírteinishafi er löggiltur ökukennari vegna réttindaflokkanna A, B, C, D og E. |
Reglugerð þessi er sett samkvæmt 50., 52., 56., 57. og 60. gr. umferðarlaga nr. 50 30. mars 1987 með áorðnum breytingum, og til innleiðingar á tilskipun 2000/56/EB, sbr. tilskipun 91/439/EBE, sem vísað er til í 24a lið XIII. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 18/2001 og öðlast þegar gildi.