1. gr.
Markmið.
Markmið þessarar reglugerðar er að innleiða reglugerð (EB) nr. 1794/2006 frá 6. desember 2006 um sameiginlegt gjaldtökukerfi fyrir flugleiðsöguþjónustu, sem birt er sem viðauki I við reglugerð þessa, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 91/2007 frá 6. júlí 2007.
2. gr.
Gildissvið.
Gildissvið reglugerðarinnar er nánar skilgreint í 2.-5. mgr. 1. gr. reglugerðar (EB) nr. 1794/2006 um sameiginlegt gjaldtökukerfi fyrir flugleiðsöguþjónustu, sbr. viðauka I við reglugerðina og ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar.
3. gr.
Lögbært yfirvald.
Flugmálastjórn Íslands telst lögbært yfirvald skv. reglugerð þessari.
4. gr.
Innleiðing.
Með reglugerð þessari öðlast gildi hér á landi reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1794/2006 frá 6. desember 2006 um sameiginlegt gjaldtökukerfi fyrir flugleiðsöguþjónustu, sem birt er sem viðauki I við reglugerð þessa, með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XIII. viðauka EES-samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum hans, samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 91/2007 frá 6. júlí 2007, birt í EES-viðbæti nr. 60, bls. 28.
5. gr.
Gildistaka.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 57. gr. a, sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998 með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.
Samgönguráðuneytinu, 15. október 2008.
Kristján L. Möller.
Ragnhildur Hjaltadóttir.
VIÐAUKI
(sjá PDF-skjal)