1. gr.
Í 2. gr. reglugerðarinnar skal í stað orðanna "2. gr. reglugerðarinnar orðast svo:" standa: 1. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar orðast svo.
2. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 68. gr. laga nr. 17/1991 um einkaleyfi, sbr. 86. gr. laga nr. 167/2007 um breytingu á ýmsum lögum vegna tilfærslu verkefna innan Stjórnarráðs Íslands, öðlast gildi 1. mars 2008.
Viðskiptaráðuneytinu, 29. febrúar 2008.
Björgvin G. Sigurðsson.
Áslaug Árnadóttir.