Grein 1.6 hljóði svo:
1.6 Eftirlitsgjöld:
1.6.1 Eigendur raforkuvera og rafveitna skulu greiða Rafmagnseftirliti ríkisins rafveitueftirlitsgjald, allt að 1,2% af heildarandvirði ratorkusölu þeirra og heildarendurgjaldi fyrir leigu mælitækja að frádregnu andvirði aðkeyptrar raforku, virðisaukaskatti og öðrum sambærilegum gjöldum sem á kynnu að verða lögð.
Sérhver gjaldskyldur aðili skal ótilkvaddur skila skýrslu til Rafmagnseftirlits ríkisins mánaðarlega ásamt greiðslu. Í skýrslunni komi fram fjárhæð raforkusölu til kaupenda í síðasta almanaksmánuði, mælaleiga, aðkeypt raforka, virðisaukaskattur, endurgreiðsla fyrir ofgreidda raforku eftir atvikum, önnur gjöld skv. ofansögðu, svo og rafveitueftirlitsgjald það sem inna ber of hendi. Skýrslan skal undirrituð af þeim aðila, manni eða mönnum, sem heimild hafa til að skuldbinda gjaldskylda aðila, eða öðrum þeim sem til þess hafa sérstakt umboð samkvæmt stöðu sinni. Skýrslunni skal skilað í þríriti og áritar Rafmangseftirlitið eitt afritið um móttöku skýrslunnar og dagsetningu móttöku. Skili gjaldskyldur aðili ekki skýrslu á réttum tíma skal Rafmagnseftirlitið áætla orkusölu þess aðila á grundvelli raforkusölu síðustu 12 mánaða og annarra atriða er máli skipta.
Nú notar eigandi raforkuvers sjálfur alla þá orku sem þar er unnin eða verulegan hluta hennar og hún er ekki mæld eða verðlögð eða ekki er vitað um tekjur of raforkusölu og má þá miða gjaldið við áætlaða orkunotkun, málafl rafala í raforkuveri eða við kostnað af eftirlitinu og greiðist Rafmagnseftirliti ríkisins samkvæmt reikningi þess.
1.6.2 Greiða skal Rafmagnseftirliti ríkisins gjald fyrir eftirlit þess með uppsetningu nýrra raforkuvirkja og raforkuvirkja á byggingarsvæðum. Skal miða gjaldið við kostnað of eftirlitinu og greiðast Rafmagnseftirlitinu samkvæmt reikningi þess.
1.6.3 Þeir sem flytja inn til landsins eftirlitsskyld rafföng og hluta þeirra eða framleiða þau innanlands, greiði til Rafmagnseftirlitsins gjald sem af innfluttum rafföngum og hlutum greiðist af tollverði viðkomandi raffangs, en af innlendri framleiðslu af verksmiðjuverði raffangsins. Má gjald þetta nema allt að ¾% af viðkomandi verði.
1.6.4 Þeir sem flytja inn til landsins eftirlitsskyld rafföng og hluta þeirra eða framleiða þau innanlands, greiði til Rafmangseftirlitsins gjöld fyrir prófun, viðurkenningu og skrásetningu viðkomandi raffanga samkvæmt sérstakri gjaldskrá sem Rafmagnseftirlitið gefur út hér að lútandi.
1.6.5 Gjalddagi rafveitueftirlitsgjalds er 15. dagur næsta mánaðar eftir sölumánuð. Gjalddagi reikninga fyrir önnur eftirlitsgjöld skv. þessari grein eru 20 dagar eftir dagsetningu reikninga. Eindagi er 10 dögum síðar. Beri eindaga upp á helgidag eða almennan frídag færist eindagi á næsta virkan dag á eftir. Rafmagnseftirlitinu eru þó heimilt að krefjast fyrirframgreiðslu vegna eftirlitsgjalda í lið 1.6.4. Séu eftirlitsgjöld skv. þessari grein eigi greidd á eindaga falla á hæstu leyfilegir dráttarvextir á hverjum tíma fyrir hvern byrjaðan mánuð, talið frá gjalddaga. Eftirlitsgjöld og dráttarvexti má taka lögtaki skv. 1. nr. 29/1985.
Ágreining um gjaldskyldu eða gjaldstofna skv. þessari grein má bera undir ráðherra orkumála.
Reglugerðarbreyting þessi gildir frá og með 1. janúar 1990.
Iðnaðarráðuneytið, 28. febrúar 1990.
Jón Sigurðsson.
Páll Flygenring.