Eftirfarandi breytingar verða á 1. gr. reglugerðarinnar:
a. | Í stað orðanna "lýsingar með tilheyrandi einkaleyfiskröfum, teikningum og ágripi" í a-lið 8. tölul. kemur: einkaleyfisskjals (lýsing, einkaleyfiskröfur, teikningar og ágrip). | ||
b. | Á eftir 8. tölul. kemur nýr tölul., 9. tölul., sem orðast svo: | ||
9. | Útgáfugjald skv. 2. tölul. 1. mgr. 77. gr. ell.: | ||
a. | grunngjald fyrir fyrstu 40 blaðsíður einkaleyfisskjals (lýsing, einkaleyfiskröfur og teikningar) |
16.000
|
|
b. | viðbótargjald fyrir hverja blaðsíðu umfram 40 |
700
|
|
c. | 9. tölul. verður 10. tölul. | ||
d. | Á eftir 10. tölul. skv. c- lið að ofan kemur nýr tölul., 11. tölul., sem orðast svo: | ||
11. | Gjald fyrir útgáfu leiðréttrar þýðingar skv. 1. mgr. 86. gr. ell. |
16.000
|
|
e. | 10. tölul. verður 12. tölul. |
Eftirfarandi breytingar verða á 2. gr. reglugerðarinnar:
a. | Í stað orðanna "Árgjöld fyrir einkaleyfisumsóknir og einkaleyfi skv. 5. mgr. 8. gr., 40. – 42. og 82. gr. ell. eru sem hér segir:" í 1. mgr. kemur: Árgjöld fyrir einkaleyfisumsóknir og einkaleyfi skv. 5. mgr. 8. gr., 40. – 42. gr., 81. og 98. gr. ell. eru sem hér segir:. |
b. | Í stað orðanna "eða 3. mgr. 42. gr. ell." í 2. mgr. kemur: 3. mgr. 42. gr. eða 81. gr. ell. |
Eftirfarandi breytingar verða á 3. gr. reglugerðarinnar:
a. | 1. málsl. 1. mgr. orðast svo: |
Gjöld fyrir einkaleyfi, sem veitt eru í samræmi við eldri lög, skv. 92. gr. ell., á grundvelli umsókna sem lagðar hafa verið inn fyrir 1. janúar 1992, sbr. 94. gr. ell., skulu vera sem hér segir: | |
b. | Í stað orðanna "2. mgr. 82. gr." í 3. mgr. kemur: 2. mgr. 98. gr. |
Eftirfarandi breytingar verða á 5. gr. reglugerðarinnar:
a. | Í 3. tölul. falla niður orðin "eða framlagningarskjali". |
b. | Gjald skv. 8. tölul. hækkar úr 17.000 kr. í 20.000 kr. |
Reglugerð þessi, sem er sett samkvæmt heimild í 68. gr. laga nr. 17/1991 um einkaleyfi, með síðari breytingum, öðlast gildi 1. nóvember 2004.