Heilbrigðisráðuneyti

177/2022

Reglugerð um takmörkun á samkomum vegna farsóttar. - Brottfallin

1. gr.

Markmið.

Með vísan til 2. mgr. 12. gr. sóttvarnalaga nr. 19/1997, með síðari breytingum, hefur heilbrigðis­ráðherra ákveðið, að fenginni tillögu sóttvarnalæknis og í samráði við ríkisstjórnina, að setja á tíma­bundna takmörkun á samkomum eftir því sem nánar greinir í reglugerð þessari.

Markmið takmörkunarinnar er að hægja eins og unnt er á útbreiðslu COVID-19 sjúkdómsins.

 

2. gr.

Gildissvið.

Takmörkun á samkomum tekur gildi 12. febrúar 2022 og gildir til og með 25. febrúar 2022.

Stjórnvöld endurmeta þörf á takmörkuninni eftir því sem efni standa til, þ.e. hvort unnt sé að aflétta henni fyrr eða hvort þörf sé á að framlengja gildistíma hennar.

Takmörkun á samkomum tekur til landsins alls.

Reglugerðin tekur hvorki til alþjóðaflugvalla og -hafna né til loftfara, skipa í millilandaferðum og skipa sem stunda fiskveiðar.

Reglugerðin tekur ekki til heilbrigðisstofnana og þjónustu sem veitt er af þeim stofnunum, hjúkr­unarheimila og annarra sambærilegra stofn­ana, en þær skulu setja sér reglur um sóttvarnir, sbr. 6. gr.

Ákvæði reglugerðar þessarar um nálægðartakmörkun taka ekki til barna sem fædd eru 2016 og síðar. Ákvæði um grímuskyldu tekur ekki til barna sem fædd eru 2006 og síðar.

Reglugerð þessi tekur til skólastarfs eftir því sem við á.

 

3. gr.

Fjöldatakmörkun.

Í takmörkun á samkomum felst að fjöldasamkomur eru óheimilar á gildistíma þessarar reglu­gerðar. Með fjöldasamkomum er átt við það þegar fleiri en 200 einstaklingar koma saman innandyra, hvort sem er í opinberum rýmum eða einkarýmum. Er þá meðal annars vísað til:

  1. Ráðstefna, málþinga o.þ.h.
  2. Kennslu, fyrirlestra og prófahalds.
  3. Skemmtana, svo sem standandi eða sitjandi viðburða og einkasamkvæma.
  4. Annarra sambærilegra viðburða með fleiri en 200 einstaklingum.

Enn fremur skal tryggt á öllum vinnustöðum og í allri starfsemi að ekki séu á sama tíma fleiri en 200 einstaklingar inni í sama rými. Tryggja skal að ekki sé samgangur milli rýma.

Þrátt fyrir 1. og 2. mgr. er heimilt í sameiginlegum umgangsrýmum innandyra á öllum skóla­stigum, svo sem við innganga, í anddyri og á göngum, sem og í mötuneytum, að víkja frá fjölda­takmörkun að því gefnu að starfsfólk og nemendur fæddir 2005 og fyrr noti andlitsgrímur. Jafnframt er blöndun hópa heimil á öllum skólastigum og starfsfólki er heimilt að fara milli rýma.

Þrátt fyrir 1. og 2. mgr. er heimilt að hafa allt að 1.000 manns í rými, að eftirfarandi skilyrðum upp­fylltum:

  1. Allir gestir séu sitjandi og ekki andspænis hver öðrum.
  2. Allir gestir noti andlitsgrímu.

Þrátt fyrir 1. og 2. mgr. er grunn- og framhaldsskólum heimilt að halda skemmtanir fyrir nemendur og eru þær undanþegnar fjöldatakmörkun, nálægðartakmörkun og grímuskyldu.

Þrátt fyrir 1. og 2. mgr. eru verslanir undanþegnar fjöldatakmörkun.

 

4. gr.

Almenn nálægðartakmörkun og grímunotkun.

Á samkomum, öllum vinnustöðum, verslunum, söfnum og allri annarri starfsemi, meðal annars þeirri sem talin er upp í 3. gr., skal tryggja að hægt sé að hafa a.m.k. 1 metra á milli einstaklinga sem ekki eru í nánum tengslum.

Þrátt fyrir 1. mgr. gildir ekki 1 metra nálægðartakmörkun á sitjandi viðburðum skv. 4. mgr. 3. gr. Þá gildir 1 metra nálægðartakmörkun hvorki á skólaskemmtunum skv. 5. mgr. 3. gr. né í skóla­stofum á öllum skólastigum.

Andlitsgrímur skal nota þar sem ekki er unnt að tryggja 1 metra nálægðartakmörkun skv. 1. mgr., svo sem í verslunum og verslunarmiðstöðvum, á söfnum, í heilbrigðisþjónustu, innanlandsflugi og ‑ferjum, almenningssamgöngum, leigubifreiðum og hópbifreiðum, í verklegu ökunámi og flug­námi, auk þess í menningarstarfsemi, starfsemi hárgreiðslustofa, snyrtistofa, nuddstofa, húðflúr­stofa, hundasnyrti­stofa, sólbaðsstofa og annarri sambærilegri starfsemi.

Andlitsgríma skal hylja nef og munn. Andlitsgrímur sem notaðar eru utan heilbrigðisþjónustu skulu uppfylla kröfur sem fram koma í vinnustofusamþykkt evrópsku staðlasamtakanna (CEN). Sótt­varna­læknir getur sett nánari leiðbeiningar um kröfur til andlitsgríma samkvæmt ákvæði þessu. Í þjónustu sem krefst snertingar skal gætt að handþvotti og sótthreinsun handa, auk þess skal sótt­hreinsa snertifleti milli viðskiptavina.

Undanþegnir grímuskyldu skv. 3. mgr. eru þeir einstaklingar sem hafa ekki skilning eða þroska til að nota andlitsgrímu rétt eða geta það ekki af öðrum ástæðum, svo sem vegna heilsufars.

Kennurum og nemendum fæddum 2005 og fyrr er heimilt í skólum að taka niður grímu eftir að sest er niður inni í skólastofu. Kennurum og öðrum starfsmönnum er ekki skylt að bera grímu í sam­skiptum við nemendur í leik- og grunnskólum.

 

5. gr.

Takmarkanir á starfsemi vegna sérstakrar smithættu.

Veitingastaðir þar sem eru heimilaðar áfengisveitingar, svo sem veitingahús, kaffihús, krár og skemmtistaðir, sem og spilasalir og spilakassar skulu ekki hafa opið lengur en til kl. 00.00 alla daga vikunnar. Í því felst að ekki er heimilt að hleypa inn nýjum viðskiptavinum eftir kl. 00.00 og skulu þeir hafa yfirgefið staðinn eigi síðar en kl. 01.00. Gestir mega að hámarki vera 200 í rými.

Ekki er heimilt að halda einkasamkvæmi eftir kl. 01.00 á stöðum sem hafa vínveitingaleyfi.

Ekki er heimilt að veita tímabundið leyfi fyrir skemmtunum, svo sem tónleikum, dansleikjum, brennum eða öðrum viðburðum sem ætla má að dragi að sér hóp fólks eftir kl. 01.00.

Þrátt fyrir ákvæði 3. gr. um fjöldatakmörkun miðast gestafjöldi á heilsu- og líkamsræktarstöðvum, sund- og baðstöðum og skíðasvæðum við leyfilegan hámarksfjölda gesta samkvæmt starfsleyfi. Sé hámarksfjöldi gesta ekki skráður í starfsleyfi skal miða gestafjölda við þann fjölda sem fata­skipti­rými gerir ráð fyrir. Börn fædd árið 2016 og síðar eru ekki talin með í gestafjölda. Sam­eigin­leg áhöld skulu sótthreinsuð milli notenda og skal loftað reglulega út. Sóttvarnalæknir gefur út nánari leiðbeiningar um heilsu- og líkamsræktarstöðvar og sund- og baðstaði vegna COVID-19. Ákvæði þetta tekur einnig til baðstaða í náttúrunni eftir því sem við á.

Íþróttaæfingar og -keppnir barna og fullorðinna innandyra, með og án snertingar, eru heimilar með allt að 200 manns í rými. Sama gildir um íþróttakennslu. Búningsaðstaða skal þrifin reglulega og snerti­fletir sótthreinsaðir milli hópa. Sameiginleg áhöld skulu sótthreinsuð milli hópa, loftræsting skal vera í lagi og loftað reglulega út yfir daginn. Sama gildir um sitjandi borðleiki, svo sem skák, bridds og bingó. Um áhorfendur fer eftir 3. gr.

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands setur sérsamböndum reglur, svo sem um einstaklings­bundnar sóttvarnir og sótthreinsun búnaðar, um framkvæmd æfinga og keppna í sínum greinum í samvinnu við sóttvarnalækni. Í íþróttum sem ekki tilheyra Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands skal setja leiðbein­ingar eða fylgja sömu leiðbeiningum og gilda um sambærilegar íþróttir innan sambandsins.

Sviðslistir, kórastarf sem og aðrir menningarviðburðir eru heimilir með allt að 200 manns á sviði, þ.e. æfingar og sýningar. Andlitsgrímur skulu notaðar þegar því verður við komið nema þegar list­flutningur fer fram. Leitast skal við að viðhafa 1 metra nálægðartakmörkun. Gætt skal að hand­hreinsun, sótthreinsun sameiginlegs búnaðar a.m.k. tvisvar á dag og tryggja skal að loftræsting sé í lagi. Um áhorfendur fer eftir 3. gr.

 

6. gr.

Hjúkrunarheimili og aðrar heilbrigðisstofnanir.

Heilbrigðisstofnanir, hjúkrunarheimili og aðrar sambærilegar stofnanir eru almennt undan­þegnar ákvæðum reglugerðarinnar en skulu setja sér reglur um starfsemi sína, svo sem um heim­sóknir utanað­komandi að heimilunum og stofnununum, nálægðartakmarkanir, hámarksfjölda í rými og hlífðar­búnað.

 

7. gr.

Þrif og sótthreinsun almenningsrýma.

Í öllum verslunum, opinberum byggingum og á öðrum stöðum innandyra þar sem umgangur fólks er nokkur skal þrífa eins oft og unnt er, sérstaklega algenga snertifleti. Auk þess skal minna almenn­ing og starfsmenn á einstaklingsbundnar sóttvarnir, svo sem munnlega, með merkingum eða skiltum. Þá skal tryggja góða loftræstingu þar sem umgangur fólks er nokkur og lofta reglulega út.

Við alla innganga skal tryggja aðgang að sótthreinsandi vökva fyrir hendur og eins víða um rými og talin er þörf á, meðal annars við afgreiðslukassa og innkaupakerrur í verslunum.

 

8. gr.

Undanþágur.

Ráðherra getur veitt undanþágu frá takmörkun á samkomum til verndar lífi eða heilsu manna eða dýra eða vegna samfélagslega ómissandi innviða sem mega ekki stöðvast, svo sem á sviði raf­orku, fjarskipta, samgangna, sorphirðu, heilbrigðisstarfsemi, félagsþjónustu, löggæslu, sjúkra­flutn­inga, hjálparliðs almannavarna eða slökkviliða.

Hið sama á við vegna kerfislega og efnahagslega mikilvægrar starfsemi, svo sem til að tryggja fæðuöryggi, dreifingu nauðsynjavara eða efnahagslegt öryggi ríkisins með útflutningi. Enn fremur getur ráðherra veitt undanþágu vegna starfa Alþingis, dómstóla og stjórnsýslu.

Þá getur ráðherra veitt undanþágu frá takmörkunum þegar sérstaklega stendur á, enda sé gætt fyllstu sóttvarnaráðstafana að öðru leyti. Við veitingu undanþága skal leitast við að grípa til annarra aðgerða þannig að gætt sé að smitvörnum eins og kostur er.

Ráðherra getur óskað eftir umsögnum frá sóttvarnalækni, mennta- og barnamálaráðherra, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra eða félags- og vinnumarkaðsráðherra um beiðnir um undanþágu.

 

9. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 12. gr. sóttvarnalaga nr. 19/1997, með síðari breytingum, tekur gildi eftir því sem mælt er fyrir um í 2. gr. Frá sama tíma falla úr gildi reglugerð nr. 90/2022, um takmörkun á samkomum vegna farsóttar, með síðari breytingu, og reglugerð nr. 91/2022, um takmörkun á skólastarfi vegna farsóttar, með síðari breytingu.

 

Heilbrigðisráðuneytinu, 11. febrúar 2022.

 

Willum Þór Þórsson
heilbrigðisráðherra.

Ásthildur Knútsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica