Prentað þann 22. apríl 2025
Brottfallin reglugerð felld brott 13. jan. 2022
1499/2021
Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð um takmörkun á samkomum vegna farsóttar nr. 1484/2021.
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 3. gr. reglugerðarinnar:
- 3. mgr. verður svohljóðandi:
Þrátt fyrir 1. og 2. mgr. er verslunum og söfnum heimilt að taka við 50 manns í rými og til viðbótar fimm viðskiptavinum á hverja 10 m² umfram 100 m², þó að hámarki 500 viðskiptavinum. Leitast skal við að viðhafa 2 metra nálægðartakmörkun þar sem fólk staldrar við í lengri tíma, svo sem í biðröðum á kassasvæðum. - Á eftir orðunum "allir gestir" í 5. mgr. kemur: fæddir 2015 og fyrr.
2. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 12. gr. sóttvarnalaga nr. 19/1997, með síðari breytingum, tekur gildi nú þegar.
Heilbrigðisráðuneytinu, 22. desember 2021.
F. h. heilbrigðisráðherra,
Ásta Valdimarsdóttir.
Ásthildur Knútsdóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.