Prentað þann 6. apríl 2025
797/2021
Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð nr. 747/2021, um sóttkví og einangrun og sýnatöku við landamæri Íslands vegna COVID-19.
1. gr.
Við 9. gr. reglugerðarinnar bætist ný málsgrein svohljóðandi: Sóttvarnalækni er heimilt að gefa út leiðbeiningar að því er varðar tilhögun á sóttkví þeirra sem fengið hafa bólusetningu gegn COVID-19, svo sem um sóttkví þegar bólusettur einstaklingur er útsettur fyrir COVID-19 og vinnusóttkví.
2. gr.
Reglugerð þessi sem sett er á grundvelli 12., 13., 14. og 18. gr. sóttvarnalaga nr. 19/1997, með síðari breytingum, tekur þegar gildi.
Heilbrigðisráðuneytinu, 5. júlí 2021.
F. h. r.
Ásta Valdimarsdóttir.
Rögnvaldur G. Gunnarsson.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.