1. gr.
Lyf, sem tannlæknar mega ávísa sjúklingum.
Á eftir B03 Blóðskortslyf, í 2. tl. 2. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar bætist nýr ATC-flokkur: B 05 BB 01 Elktrólýtar. Á eftir V 03 AB, í 2. tl. 2. mgr. 2. gr. bætist nýr ATC-flokkur: V 07 AB leysi- og þynningarvökvar.
2. gr.
Undanþágur.
4. gr. reglugerðarinnar orðast svo: Ráðuneytið getur veitt tannlækni með sérfræðileyfi eða sérþekkingu og reynslu, undanþágu til að ávísa lyfjum, öðrum en þeim sem tilgreind eru í þessari reglugerð að fenginni umsögn landlæknis og Lyfjastofnunar.
3. gr.
Gildistaka.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 12. og 50. gr. lyfjalaga, nr. 93/1994, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.
Velferðarráðuneytinu, 11. apríl 2016.
Kristján Þór Júlíusson
heilbrigðisráðherra.
Margrét Björnsdóttir.