1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 1. gr.:
Með sjúkratryggðum einstaklingi er átt við einstakling sem er sjúkratryggður skv. 3. gr. reglugerðar um hlutdeild sjúkratryggðra í kostnaði vegna heilbrigðisþjónustu, nú reglugerð nr. 1265/2007.
2. gr.
Í stað orðanna "heilbrigðis- og tryggingamálaráðherrar" í 1. málsl. 1. mgr. og 2. mgr. 2. gr. kemur: heilbrigðisráðherra.
3. gr.
Í stað orðanna "5. mgr. 3. gr. laga nr. 97/1990 um heilbrigðisþjónustu, með síðari breytingum" í 2. mgr. 3. gr. kemur: 12. gr. laga nr. 41/2007 um landlækni.
4. gr.
1. málsl. 2. mgr. 5. gr. orðast svo: Sjúkratryggður einstaklingur skal greiða komugjald á heilsugæslustöð eða hjá heilsugæslulækni skv. reglugerð um hlutdeild sjúkratryggðra í kostnaði vegna heilbrigðisþjónustu, nú reglugerð nr. 1265/2007.
5. gr.
Í stað orðanna "nr. 1030/2004 um hlutdeild sjúkratryggðra í kostnaði vegna heilbrigðisþjónustu" í 1. málsl. 2. mgr. 7. gr. kemur: reglugerðar um hlutdeild sjúkratryggðra í kostnaði vegna heilbrigðisþjónustu, nú reglugerðar nr. 1265/2007.
6. gr.
2. mgr. 9. gr. fellur brott.
7. gr.
Í stað gjaldskrár í fylgiskjali með reglugerðinni kemur meðfylgjandi ný gjaldskrá.
8. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 41. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar, með síðari breytingum, öðlast gildi 1. febrúar 2008.
Heilbrigðisráðuneytinu, 16. janúar 2008.
Guðlaugur Þór Þórðarson.
Berglind Ásgeirsdóttir.
Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)