1. gr.
Á fjárhæðir tekjutryggingar og tekjutryggingarauka skv. 17. gr. laga nr. 117/1993 um almannatryggingar, með síðari breytingum, og fjárhæð heimilisuppbótar skv. 9. gr. laga nr. 118/1993 um félagslega aðstoð, með síðari breytingum, skal greiða uppbætur sem hér segir á árinu 2006:
a) Í júlí 2006 20% uppbót á þessar fjárhæðir vegna orlofsuppbótar.
b) Í desember 2006 30% uppbót á þessar fjárhæðir vegna desemberuppbótar.
2. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 66. gr., sbr. 65. gr., laga nr. 117/1993 um almannatryggingar, með síðari breytingum og 15. gr. laga nr. 118/1993 um félagslega aðstoð, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð nr. 1007/2004 um eingreiðslur til elli- og örorkulífeyrisþega árið 2005.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu, 7. desember 2005.
Jón Kristjánsson.
Davíð Á. Gunnarsson.