366/2004
Reglugerð um (5.) breytingu á reglugerð nr. 948/2000 um greiðslur almannatrygginga í lyfjakostnaði með síðari breytingum. - Brottfallin
366/2004
REGLUGERÐ
um (5.) breytingu á reglugerð nr. 948/2000 um greiðslur
almannatrygginga í lyfjakostnaði með síðari breytingum.
1. gr.
Gildistöku reglugerðar nr. 304/2004 um (4.) breytingu á reglugerð nr. 948/2000 um greiðslur almannatrygginga í lyfjakostnaði, sem taka átti gildi 1. maí 2004, er hér með frestað til 1. ágúst 2004.
2. gr.
Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu, 28. apríl 2004.
Jón Kristjánsson.
Ragnheiður Haraldsdóttir.