Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1386/2001 frá 5. júní 2001 um breytingu á reglugerð ráðsins (EBE) nr. 1408/71 um beitingu almannatryggingareglna gagnvart launþegum, sjálfstætt starfandi einstaklingum og fjölskyldum þeirra sem flytjast milli aðildarríkja og reglugerð (EBE) nr. 574/72 sem kveður á um framkvæmd reglugerðar (EBE) nr. 1408/71 skal gilda á Íslandi, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 36/2002 frá 19. apríl 2002 um breytingu á VI. viðauka (Félagslegt öryggi) við EES-samninginn. Reglugerðin skal gilda á Íslandi með þeirri aðlögun sem fram kemur í ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar.
Reglugerðin (EB) nr. 1386/2001 fjallar að hluta til um atvinnuleysistryggingar, greiðslur í fæðingarorlofi, barnabætur og réttindi úr lífeyrissjóðum. Í reglugerð frá félagsmálaráðuneytinu er mælt fyrir um gildistöku þess hluta sem fjallar um atvinnuleysistryggingar og greiðslur í fæðingarorlofi samkvæmt lögum um fæðingar- og foreldraorlof. Í reglugerð fjármálaráðuneytisins er mælt fyrir um gildistöku þess hluta sem fjallar um barnabætur og réttindi úr lífeyrissjóðum.
Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1386/2001 og ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 36/2002, sbr. 1. gr., sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi EB, nr. 29, 13. júní 2002, bls. 14-15, er birt sem fylgiskjal með reglugerð þessari.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 66. gr. laga nr. 117/1993 um almannatryggingar, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.