27. gr. orðast svo:
Óski útgefandi lyfseðils að ávísuð lyf séu afhent í skammtaöskju er lyfjafræðingi heimilt að rjúfa pakkningar lyfs í því skyni og telst skammtaaskjan þá vera umbúðir.
Læknir skal merkja við viðeigandi reit á lyfseðli með upphafsstöfum sínum, sé þess óskað að lyf verði afhent í skammtaöskju. Slíkir lyfseðlar nefnast skömmtunarlyfseðlar. Óheimilt er að ávísa á sama lyfseðli lyfi sem afgreiða á í skammtaöskju og lyfi sem ekki á að afgreiða í skammtaöskju.
Um skömmtunarlyfseðla gilda eftirfarandi reglur:
1. | Engin fjöldatakmörkun er á afgreiðslum skv. lyfseðlinum. Gildistími hans miðast við útgáfudag og gildir lengst í 12 mánuði, ef læknir takmarkar ekki gildistíma hans, sbr. 33. gr. |
2. | Rita má tvær lyfjaávísanir á hvern lyfseðil. |
3. | Skömmtunarlyfseðill skal merktur sérstaklega og geymdur með skömmtunarkorti/ skömmtunarbeiðni í þeirri lyfjabúð, sem ber ábyrgð á skömmtuninni. |
4. | Skömmtunarlyfseðli má ekki breyta í almennan lyfseðil. Sé lyfjaskömmtun hætt er skömmtunarlyfseðill ógildur. |
5. | Skömmtunarlyfseðil má hvorki senda með rafrænum hætti né myndsenda. |
Um afgreiðslu lyfja í skammtaöskju fer samkvæmt sérstakri reglugerð um skömmtun lyfja.
Eftirfarandi breytingar verða á 28. gr.:
a. 2. málsl., 2. mgr. orðast svo:
Einungis má ávísa einu lyfi með hverjum fjölnota lyfseðli og gildir hann mest fyrir fjórar afgreiðslur, sbr. þó skömmtunarlyfseðil skv. 27. gr.
b. 4. mgr. orðast svo:
6. Óheimilt er að ávísa eftirritunarskyldum lyfjum með fjölnota lyfseðli, þó er heimilt að víkja frá þessu, ef tilgreint er á lyfseðli að skammta eigi lyfið og er þá engin fjöldatakmörkun á afgreiðslum skv. lyfseðlinum. Gildistími hans miðast við útgáfudag og gildir lengst í 12 mánuði, ef læknir takmarkar ekki gildistíma hans, sbr. 33. gr. Fjölnota lyfseðla má hvorki senda með rafrænum hætti né myndsenda.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 12. gr. lyfjalaga nr. 93/1994 með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.