Á fjárhæð tekjutryggingar skv. 17. gr. laga nr. 117/1993 um almannatryggingar og fjárhæðir heimilisuppbótar og sérstakrar heimilisuppbótar skv. 9. gr. laga nr. 118/1993 um félagslega aðstoð skal greiða uppbót sem hér segir á árinu 2000:
a) Í júlí 2000 skal greiða 20% uppbót á þessar fjárhæðir vegna orlofsuppbótar.
b) Í desember 2000 skal greiða 30% uppbót á þessar fjárhæðir vegna desemberuppbótar.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt 65. gr. laga nr. 117/1993 um almannatryggingar, sbr. 13. gr. laga nr. 118/1993 um félagslega aðstoð og öðlast þegar gildi.