REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð um hlutdeild sjúkratryggðra í kostnaði
vegna heilbrigðisþjónustu nr. 68/1996.
1. gr.
11. gr. verði svohljóðandi:
Fyrir meðferð á glasafrjóvgunardeild Landspítalans skal greiða sem hér segir:
1. Par sem ekki á barn saman: Glasafrjóvgun (IVF) Smásjárfrjóvgun(ICSI)
a) fyrsta meðferð kr. 115.000 kr. 138.000
b) önnur til fjórða meðferð " 65.000 " 78.000
c) fimmta meðferð eða fleiri " 215.000 " 258.000
2. Par sem á eitt barn saman:
a) fyrsta til fjórða meðferð " 170.000 " 204.000
b) fimmta meðferð eða fleiri " 215.000 " 258.000
3. Par sem á fleiri börn saman: " 215.000 " 258.000
Inni í þessari greiðslu felst kostnaður vegna nauðsynlegra rannsókna, heimsókna til sérfræðinga á glasafrjóvgunardeildinni og lyfja, annarra en örvunarlyfja eggjastokka, en um greiðslu þeirra fer samkvæmt reglugerð um greiðslur almannatrygginga í lyfjakostnaði.
Greiðslur skulu skiptast þannig að í upphafi hverrar meðferðar skal greitt 20% af heildargjaldi. Eftirstöðvar gjalds skal greiða þegar ákveðið hefur verið að framkvæma eggheimtu.
4. Uppsetning frystra fósturvísa kr. 35.000.
5. Geymsla frystra fósturvísa kr. 9.000 fyrir hvert byrjað geymsluár.
Frysting fósturvísa er að öðru leyti innifalin í meðferðargjaldi.
6. Tæknisæðing, aðeins ef uppsetning er framkvæmd, kr. 18.000.
Fyrir aðrar rannsóknir á glasafrjóvgunardeild sem ekki tengjast glasafrjóvgunarmeðferð skal greiða eins og um göngudeildarheimsóknir og rannsóknir sé að ræða.
2. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 36. gr. laga nr. 117/1993 um almannatryggingar öðlast þegar gildi.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu, 9. apríl 1997.
Ingibjörg Pálmadóttir.
Guðríður Þorsteinsdóttir.