1. gr.
Í stað "65.005 kr." í 1. málsl. 1. mgr. 5. gr. kemur: 70.000 kr.
2. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 29. gr. laga nr. 125/1999, um málefni aldraðra, með síðari breytingum, öðlast gildi 1. janúar 2013. Jafnframt fellur úr gildi 2. gr. reglugerðar nr. 1195/2008, um (3.) breytingu á reglugerð nr. 1112/2006, um stofnanaþjónustu fyrir aldraða.
Velferðarráðuneytinu, 21. desember 2012.
Guðbjartur Hannesson.
Hanna Sigr. Gunnsteinsdóttir.