1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 6. gr.:
Verði birgðaskortur á lyfi, sem ekki er með viðmiðunarverð, í meira en 30 daga, fellur umrætt lyf úr lyfjaverðskrá.
Verði birgðaskortur á lyfi, sem er með viðmiðunarverð, skal það tilkynnt lyfjagreiðslunefnd þegar í stað, sem gefur þá út nýtt viðmiðunarverð, sem birt verður í næstu lyfjaverðskrá, en umrætt lyf fellur úr verðskrá.
2. gr.
2. mgr. 11. gr. orðast svo:
Lyfjaverðskrá skal gefin út mánaðarlega með gildistöku fyrsta hvers mánaðar.
3. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 43. gr. og 49. gr. lyfjalaga nr. 93/1994 með síðari breytingum, öðlast gildi 1. október 2008.
Heilbrigðisráðuneytinu, 18. september 2008.
Guðlaugur Þór Þórðarson.
Berglind Ásgeirsdóttir.