1. gr.
Frítekjumörk (tekjumörk) skv. 2. og 3. málsl. 8. mgr. 43. gr. laga nr. 117/1993 um almannatryggingar, með síðari breytingum, skulu hækka frá 1. janúar 2007 að telja um 25% frá því sem þau voru í desember 2006.
2. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 66. og 43. gr., sbr. 65. gr., laga nr. 117/1993 um almannatryggingar, með síðari breytingum, öðlast gildi 1. janúar 2007. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 1114/2005 um hækkun frítekjumarka (tekjumarka) samkvæmt lögum nr. 117/1993 um almannatryggingar, með síðari breytingum.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu, 14. desember 2006.
Siv Friðleifsdóttir.
Davíð Á. Gunnarsson.