1. gr. reglugerðarinnar orðast svo:
Sóttvarnalæknir er ábyrgur fyrir því að haldin sé smitsjúkdómaskrá. Skráin tekur til smitsjúkdóma og bólusetninga (ónæmisaðgerða), sbr. reglugerð um bólusetningar á Íslandi. Gæta skal fyllsta trúnaðar um allar einkalífsupplýsingar sem fram koma í smitsjúkdómaskrá og gilda um skrána sömu reglur og aðrar sjúkraskrár. Ítrustu varúðar skal gætt við meðferð, vörslu og sendingu upplýsinga um tilkynningaskylda sjúkdóma.
2. mgr. 3. gr. orðast svo:
Læknum og hjúkrunarfræðingum er skylt að skrá í sjúkraskrá, samkvæmt nánari fyrirmælum sóttvarnalæknis, allar bólusetningar sem þeir framkvæma. Læknar tilkynna sóttvarnalækni um bólusetningar sem gerðar hafa verið.
4. gr. orðast svo:
Skráningarskyldir sjúkdómar eru:
afbrigðilegar berklasýkingar | kláðamaur |
bráður niðurgangur | lungnabólga |
condyloma genitalis | Lyme sjúkdómur (borreliosis) |
eyrnabólga | matareitrun af völdum sýkla eða eiturefna þeirra |
flatlús | mýrarkalda (malaría) |
hálsbólga | njálgur |
heilabólga (encephalitis/ meningoencephalitis) |
psittacosis |
heilahimnubólga af völdum sýkla | ristill (herpes zoster) |
heilahimnubólga af óþekktum toga | skarlatssótt |
hlaupabóla | streptókokkahálsbólga |
höfuðlús | toxóplasmasýking |
inflúensa | þvagrásarbólga af óþekktri orsök |
Tilkynningaskyldir sjúkdómar eru:
barnaveiki | lifrarbólga A |
berklar | lifrarbólga B |
bótúlismi | lifrarbólga C |
Creutzfeldt Jacob veiki og afbrigði hennar | lifrarbólga E |
enterohemorrhagisk E. coli sýking | lifrarbólga vegna annarra veira |
giardiasis | linsæri |
gulusótt | listeríusýking |
hettusótt | lömunarveiki |
HIV-sýking | meningókokkasjúkdómur |
holdsveiki | miltisbrandur |
hundaæði | mislingar |
kampýlóbaktersýking | rauðir hundar |
kíghósti | salmonellusýking |
klamydíusýking | sárasótt |
kólera | sígellusýking |
legíónellusýking | stífkrampi |
lekandi | svarti dauði |