Sóttvarnalæknir er ábyrgur fyrir því að haldin sé smitsjúkdómaskrá. Skráin tekur til smitsjúkdóma og ónæmisaðgerða. Gæta skal fyllsta trúnaðar um allar einkalífsupplýsingar sem fram koma í smitsjúkdómaskrá og gilda um skrána sömu reglur og aðrar sjúkraskrár. Ítrustu varúðar skal gætt við meðferð, vörslu og sendingu upplýsinga um tilkynningaskylda sjúkdóma.
Smitsjúkdómar eru skráningarskyldir og þeir smitsjúkdómar sem ógnað geta almannaheill eru jafnframt tilkynningaskyldir.
Með skráningarskyldu er átt við skyldu til að senda sóttvarnalækni ópersónugreindar upplýsingar en með tilkynningaskyldu er átt við skyldu til að senda persónugreindar upplýsingar um sjúkdómstilvik.
Læknum er skylt að skrá upplýsingar um smitsjúkdóma á þar til gerð eyðublöð eða með rafrænum hætti samkvæmt nánari fyrirmælum sóttvarnalæknis. Sama gildir um forstöðumenn rannsóknastofa, sjúkradeilda og annarra heilbrigðisstofnana. Skrá um smitsjúkdóma skal senda sóttvarnalækni mánaðarlega eða oftar ef hann telur þörf á því.
Læknum og hjúkrunarfræðingum er skylt að skrá í sjúkraskrá, samkvæmt nánari fyrirmælum sóttvarnalæknis, allar ónæmisaðgerðir sem þeir framkvæma. Læknar tilkynna sóttvarnalækni um ónæmisaðgerðir sem gerðar hafa verið.
Skráningarskyldir sjúkdómar eru:
afbrigðilegar berklasýkingar bráður niðurgangur condyloma genitalis eyrnabólga flatlús hálsbólga heilabólga (encephalitis/meningoencephalitis) heilahimnubólga af völdum sýkla heilahimnubólga af óþekktum toga hettusótt hlaupabóla höfuðlús inflúensa kíghósti kláðamaur |
lungnabólga Lyme sjúkdómur (borreliosis) matareitrun af völdum sýkla eða eiturefna þeirra mislingar mýrarkalda (malaría) njálgur psittacosis rauðir hundar ristill (herpes zoster) skarlatssótt stífkrampi streptókokkahálsbólga toxóplasmasýking þvagrásarbólga af óþekktri orsök |
Tilkynningaskyldir sjúkdómar eru:
barnaveiki berklar blóðkreppusótt bótúlismi Creutzfeldt Jacob veiki og afbrigði hennar enterohemorrhagisk E. coli sýking gulusótt HIV-sýking holdsveiki hundaæði kampýlóbaktersýking klamydíusýking kólera legíónellusýking |
lekandi lifrarbólga A lifrarbólga B lifrarbólga C lifrarbólga E lifrarbólga vegna annarra veira linsæri listeríusýking lömunarveiki meningókokkasjúkdómur miltisbrandur salmonellusýking sárasótt svarti dauði |
Tilkynningu um tilkynningaskyldan sjúkdóm skal senda sóttvarnalækni án tafar. Afrit tilkynningar skal samtímis senda héraðslækni þess héraðs þar sem hinn sýkti dvelst. Sóttvarnalækni er heimilt að fela göngudeildum smitsjúkdóma, sbr. 1.-3. gr. reglugerðar nr. 131/1999 um göngudeildir vegna tilkynningaskyldra smitsjúkdóma og um undanþágu frá greiðsluhlutdeild sjúklinga, að halda skrá yfir tilkynningaskyld sjúkdómstilfelli.
Á eyðublaði skal m.a. koma fram:
1. Heiti sjúkdóms og greiningarnúmer samkvæmt alþjóðlegu sjúkdóma- og dánarmeinaskránni sem er gildandi.
2. Hvenær, hvernig og hvaða sjúkdómsgreining var staðfest.
3. Persónuauðkenni og kyn hins sýkta.
4. Í hvaða læknishéraði hinn sýkti býr, dvalarstaður.
5. Nafn tilkynnanda, læknisnúmer, vinnustaður, undirskrift og dagsetning tilkynningar.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 18. gr., sbr. 3. gr., sóttvarnalaga nr. 19/1997, öðlast þegar gildi.