1. gr.
1. gr. reglugerðarinnar verður svohljóðandi:
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1950/2006 frá 13. desember 2006 um skrá, í samræmi við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2001/82/EB um Bandalagsreglur um dýralyf, yfir efni sem eru nauðsynleg við meðhöndlun dýra af hestaætt og yfir efni sem hafa í för með sér aukinn klínískan ávinning, sem vísað er til í lið 15za í XIII. kafla II. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 140/2007 frá 26. október 2007 og nr. 12/2014 frá 14. febrúar 2014 um breytingu á II. viðauka (Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun) við EES-samninginn, skulu öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af II. viðauka samningsins, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans.
2. gr.
2. gr. reglugerðarinnar verður svohljóðandi:
Reglugerð þessi og ákvarðanir sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 140/2007 og nr. 12/2014, sbr. 1. gr. hafa verið birtar í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi EB, nr. 19 frá 10. apríl 2008, bls. 68 og nr. 12 frá 27. febrúar 2014, bls. 130.
3. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 49. gr. lyfjalaga nr. 93/1994, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.
Velferðarráðuneytinu, 19. september 2014.
Kristján Þór Júlíusson
heilbrigðisráðherra.
Sveinn Magnússon.