Prentað þann 7. apríl 2025
1100/2010
Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð nr. 893/2004 um framleiðslu lyfja.
1. gr.
Á eftir 1. mgr. 3. gr. kemur ný málsgrein sem orðast svo:
Framleiðsluleyfis er ekki krafist vegna blöndunar rannsóknarlyfja fyrir notkun eða pökkun á sjúkrahúsum, heilsugæslustöðvum eða læknastofum ef ferlið er framkvæmt af lyfjafræðingum eða aðilum sem til þess hafa heimild, í samræmi við góða framleiðsluhætti í lyfjagerð (GMP), og eingöngu á að nota rannsóknarlyfin á viðkomandi stofnun.
2. gr.
1. mgr. 4. gr. orðast svo:
Sækja skal um leyfi til framleiðslu lyfja, þ.m.t. rannsóknarlyfja, til Lyfjastofnunar.
3. gr.
Á eftir orðinu lyf í 1. málsl. 5. gr. kemur: þ.m.t. rannsóknarlyf.
4. gr.
Í stað orðanna "heilbrigðisyfirvöld hafa" í 2. mgr. 6. gr. og í 2. mgr. 8. gr. kemur: Lyfjastofnun hefur.
5. gr.
37. gr. orðast svo:
Lyfjastofnun getur heimilað að fyrirtæki verði undanþegið tilteknum ákvæðum þessarar reglugerðar.
6. gr.
38. gr. orðast svo:
Lyfjastofnun getur synjað um framleiðsluleyfi séu skilyrði þessarar reglugerðar ekki uppfyllt, skilyrt leyfið tímabundið þar til skilyrði eru uppfyllt, afturkallað leyfi tímabundið, í heild eða að hluta eða svipt leyfisleyfa leyfi gerist hann brotlegur við ákvæði þessarar reglugerðar. Við slíkar ákvarðanir skal Lyfjastofnun gæta ákvæða stjórnsýslulaga nr. 37/1993, með síðari breytingum, m.a. um rökstuðning og andmælarétt.
7. gr.
Við upptalningu í viðauka I bætist eftirfarandi:
2005/28/EB: | Tilskipun framkvæmdastjórnarinnar frá 8. apríl 2005 um meginreglur og ítarlegar viðmiðunarreglur um góða klíníska starfshætti að því er varðar rannsóknarlyf í flokki mannalyfja og einnig um kröfur varðandi leyfi til framleiðslu eða innflutnings á slíkum lyfjum. |
8. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 9. og 49. gr. lyfjalaga nr. 93/1994, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.
Heilbrigðisráðuneytinu, 20. desember 2010.
Guðbjartur Hannesson.
Guðríður Þorsteinsdóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.