1. gr.
Í stað "4.858 kr." í 3. gr. reglugerðarinnar kemur: 5.067 kr.
2. gr.
Í stað "1.200.240 kr." í 1. málsl. 1. mgr. 5. gr. reglugerðarinnar kemur: 1.251.852 kr.
3. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 44. gr., sbr. 63. gr., laga nr. 100/2007, um almannatryggingar, öðlast gildi 1. janúar 2025. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 1417/2023, um breytingu á reglugerð nr. 1255/2016, um ráðstöfunarfé og dagpeninga samkvæmt lögum um almannatryggingar.
Félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu, 27. nóvember 2024.
Bjarni Benediktsson.
Jóna Guðný Eyjólfsdóttir.