1. gr.
Reglugerð þessi gildir um desemberuppbætur á grunnatvinnuleysisbætur í desember 2024.
2. gr.
Þau sem hafa staðfest atvinnuleit á tímabilinu frá 20. nóvember til 3. desember 2024 og verið skráð án atvinnu hjá Vinnumálastofnun í samtals tíu mánuði eða lengur á árinu 2024 eiga rétt á desemberuppbót að fjárhæð kr. 104.955 enda hafi viðkomandi verið að fullu tryggður skv. III. eða IV. kafla laga um atvinnuleysistryggingar á umræddum tíma.
Biðtími eftir atvinnuleysisbótum skal teljast með við útreikninga skv. 1. mgr. enda hafi viðkomandi verið skráður án atvinnu hjá Vinnumálastofnun þann tíma.
3. gr.
Þau sem hafa staðfest atvinnuleit á tímabilinu frá 20. nóvember til 3. desember 2024 og verið skráð án atvinnu hjá Vinnumálastofnun samtals í tíu mánuði eða lengur á árinu 2024 en tryggð hlutfallslega samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar á umræddum tíma eiga rétt á hlutfallslegri desemberuppbót skv. 1. mgr. 2. gr. í samræmi við það tryggingarhlutfall sem um ræðir.
Biðtími eftir atvinnuleysisbótum skal teljast með við útreikninga skv. 1. mgr. enda hafi viðkomandi verið skráður án atvinnu hjá Vinnumálastofnun þann tíma.
4. gr.
Þau sem hafa staðfest atvinnuleit á tímabilinu frá 20. nóvember til 3. desember 2024 en verið skráð án atvinnu hjá Vinnumálastofnun í skemmri tíma en tíu mánuði á árinu 2024 eiga rétt á hlutfallslegri desemberuppbót skv. 1. mgr. 2. gr. í samræmi við þann tíma sem viðkomandi hefur verið skráður án atvinnu hjá Vinnumálastofnun enda hafi viðkomandi verið að fullu tryggður skv. III. eða IV. kafla laga um atvinnuleysistryggingar á umræddum tíma, sbr. þó 4. mgr.
Þau sem hafa staðfest atvinnuleit á tímabilinu frá 20. nóvember til 3. desember 2024 en verið skráð án atvinnu hjá Vinnumálastofnun í skemmri tíma en tíu mánuði á árinu 2024 ásamt því að hafa verið tryggð hlutfallslega samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar á umræddum tíma eiga rétt á hlutfallslegri desemberuppbót skv. 1. mgr. 2. gr. í samræmi við það tryggingarhlutfall sem um ræðir og þann tíma sem viðkomandi hefur verið skráður án atvinnu hjá Vinnumálastofnun á árinu 2024, sbr. þó 4. mgr.
Biðtími eftir atvinnuleysisbótum skal teljast með við útreikninga skv. 1. eða 2. mgr. enda hafi viðkomandi verið skráður án atvinnu hjá Vinnumálastofnun þann tíma.
Þrátt fyrir 1.-3. mgr. skal desemberuppbót aldrei nema lægri fjárhæð en kr. 26.239.
5. gr.
Vinnumálastofnun skal greiða út desemberuppbætur samkvæmt reglugerð þessari eigi síðar en 15. desember 2024.
6. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 3. mgr. 33. gr. laga nr. 54/2006, um atvinnuleysistryggingar, öðlast þegar gildi.
Félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu, 19. nóvember 2024.
F. h. r.
Gissur Pétursson.
Bjarnheiður Gautadóttir.