Félags- og vinnumarkaðsráðuneyti

620/2022

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 1647/2021, um eingreiðslur til lífeyrisþega árið 2022. - Brottfallin

1. gr.

Í stað "104.929 kr." í 1. mgr. 3. gr. reglugerðarinnar kemur: 106.765 kr.

 

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 70. gr., sbr. 69. gr. og 27. tölul. ákvæðis til bráðabirgða við lög nr. 100/2007, um almanna­tryggingar, með síðari breytingum, sbr. einnig lög nr. 27/2022, og 14. gr. laga nr. 99/2007, um félagslega aðstoð, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

 

Félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu, 27. maí 2022.

 

Guðmundur Ingi Guðbrandsson.

Jóna Guðný Eyjólfsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica