156/2019
Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 555/2016, um stofnframlög ríkis og sveitarfélaga, húsnæðissjálfseignarstofnanir og almennar íbúðir, með síðari breytingum. - Brottfallin
Stofnreglugerð:
Felld brott með:
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 6. gr. reglugerðarinnar:
- Í stað "5.105.000 kr." í 1. mgr. kemur: 5.345.000 kr.
- Í stað "7.148.000 kr." í 1. mgr. kemur: 7.484.000 kr.
- Í stað "1.276.000 kr." í 1. mgr. kemur: 1.336.000 kr.
- Í stað "5.510.000 kr." í 2. mgr. kemur: 5.769.000 kr.
2. gr.
Gildistaka.
Reglugerð þessi, sem sett er á grundvelli 8. mgr. 10. gr. laga um almennar íbúðir, nr. 52/2016, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.
Félagsmálaráðuneytinu, 11. febrúar 2019.
F. h. r.
Gissur Pétursson.
Ágúst Þór Sigurðsson.