1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 5. gr. reglugerðarinnar:
2. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 8. gr. reglugerðarinnar:
3. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 1. mgr. 14. gr. reglugerðarinnar:
Á eftir orðunum "Viðaukar II-XV" kemur: auk viðbæta I og II við viðauka I.
Á eftir dagsetningunni "18. júlí 2008" kemur: EES-viðbætis við Stjórnartíðindi nr. 37, 27. júní 2013, EES-viðbætis við Stjórnartíðindi nr. 54, 25. september 2014 og EES-viðbætis við Stjórnartíðindi nr. 73, 4. desember 2014.
4. gr.
I. viðauki reglugerðarinnar fellur brott en í stað hans kemur nýr viðauki, I. viðauki, sem fylgir með reglugerð þessari.
5. gr.
Reglugerð þessi öðlast þegar gildi og er sett samkvæmt heimild í 3. mgr. 3. gr., 34., 35., 38. og 47. gr. laga nr. 46/1980, um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum, með síðari breytingum, að fenginni umsögn stjórnar Vinnueftirlits ríkisins, til innleiðingar á tilskipun 2010/26/ESB um breytingu á tilskipun 97/68/EB um samræmingu laga aðildarríkjanna er varða aðgerðir gegn losun mengandi lofttegunda og agna frá brunahreyflum færanlegra véla sem ekki eru notaðir á vegum sem vísað er til í 1. lið a XXIV. kafla II. viðauka samnings um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 76/2013, tilskipun 2011/88/ESB um breytingu á tilskipun 97/68/EB að því er varðar ákvæði um hreyfla sem settir eru á markað samkvæmt sveigjanleikaáætluninni sem vísað er til í 1. lið a XXIV. kafla II. viðauka samnings um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 126/2014, og tilskipun 2012/46/ESB um breytingu á tilskipun 97/68/EB um samræmingu laga aðildarríkjanna er varða aðgerðir gegn losun mengandi lofttegunda og agna frá brunahreyflum færanlegra véla sem notaðar eru á vegum sem vísað er til í 1. lið a XXIV. kafla II. viðauka samnings um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 186/2014.
Velferðarráðuneytinu, 24. maí 2016.
Eygló Harðardóttir
félags- og húsnæðismálaráðherra.
Hanna Sigr. Gunnsteinsdóttir.
VIÐAUKI
(sjá PDF-skjal)