1. gr.
Í stað "12.115 kr." í 1. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar kemur: 12.587 kr.
2. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 14. gr., sbr. 10. gr. laga nr. 99/2007 um félagslega aðstoð, með síðari breytingum, öðlast gildi 1. janúar 2013. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 1230/2011, um breytingu á reglugerð nr. 170/2009, um styrki og uppbætur til hreyfihamlaðra einstaklinga vegna bifreiða.
Velferðarráðuneytinu, 19. desember 2012.
Guðbjartur Hannesson.
Hanna Sigr. Gunnsteinsdóttir.