Fjármálaráðuneyti

428/2007

Reglugerð um úthlutun tollkvóta samkvæmt sérstökum samningi Íslands og Noregs um viðskipti milli ríkjanna.

1. gr.

Reglugerð þessi gildir um úthlutun fjármálaráðherra á tollkvóta vegna ársins 2007 samkvæmt sérstökum samningi Íslands og Noregs, dags. 22. mars 2000, um viðskipti milli ríkjanna og á grundvelli 13. gr. tollalaga, nr. 88/2005, og í samræmi við tillögur nefndar skv. 87. gr. laga um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum, nr. 99/1993. Tollkvóti samkvæmt reglugerð þessari tekur til vara í tollskrárnúmeri 2005.2003, sem upprunnar eru í Noregi og eru innfluttar þaðan, sbr. bókun 4 við EES-samninginn.

2. gr.

Ákvæði eftirfarandi töflu gilda um vörumagn, tímabil innflutnings, verð- og magntoll:

Vara

Tímabil

Vörumagn

Verðtollur

Magntollur

Tollskrárnúmer:

kg

%

kr./kg


2005.2003

 

Kartöflur:
Nasl svo sem skífur, skrúfur, hringir, keilur, stangir o.þ.h., þó ekki úr kartöflumjöli.


01.06.07- 31.12.07


15.000


0


0

3. gr.

Tollkvóta er úthlutað samkvæmt auglýsingu fjármálaráðuneytisins þar sem tilgreindir eru skilmálar vegna úthlutunarinnar.Úthlutun er ekki framseljanleg.

Berist umsóknir um meira magn en nemur auglýstum tollkvóta skv. 2. gr. verður úthlutun miðuð við hlutfall innflutnings hvers umsækjanda miðað við heildarinnflutning allra umsækjenda af vörum í tollskrárnúmeri 2005.2003 á tímabilinu 1. janúar 2006 til 31. desember 2006.

Umsækjanda er skylt að láta fjármálaráðuneytinu í té afrit af tollskjölum vegna vöru­sendinga í áðurnefndu tollskrárnúmeri sem hann flutti inn á árinu 2006 óski ráðuneytið eftir framlagningu þeirra.

4. gr.

Vörur sem fluttar eru inn samkvæmt úthlutuðum tollkvóta skulu hljóta tollafgreiðslu innan þess tímabils sem tilgreint er í 2. gr. Endurúthluta má tollkvóta sem ekki er nýttur innan þess frests.

5. gr.

Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum samkvæmt XXII. kafla tollalaga, nr. 88/2005.

6. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 7. mgr. 13. gr. tollalaga, nr. 88/2005. Reglugerðin öðlast þegar gildi og gildir til 31. desember 2007.

Fjármálaráðuneytinu, 27. apríl 2007.

F. h. r.

Baldur Guðlaugsson.

Vala R. Þorsteinsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica