Í stað tollskrárnúmeranna 9801.1033 og 9901.1033 í 2. mgr. 5. gr. reglugerðarinnar koma: 9801.1042 og 9901.1042.
Í stað orðsins "ríkistollstjóra" í 2. mgr. 4. gr. og kaflafyrirsögn á undan 20. gr. og "ríkistollstjóri" í 3. mgr. 6. gr., 1. mgr. 10. gr., 15. gr., og 20. gr. koma: tollstjórans í Reykjavík og tollstjórinn í Reykjavík.
Eftirfarandi breytingar eru gerðar á fylgiskjali I við reglugerðina:
a. | Við upptalningu tollskrárnúmera og vörulýsinga bætast tvö númer svohljóðandi: |
Tollskrár-númer | Vöruheiti |
Tollur
|
Gjöld
|
||
A
% |
E
% |
||||
9801.1041 | – | Vindlingar |
0
|
Ö2, T1
|
|
9801.1042 | – | Annað tóbak |
0
|
Ö2, T2
|
b. | Á eftir orðunum "um gjald af áfengi" í 2., 3. og 4. tölul. 2. mgr. fylgiskjals I kemur: og tóbaki. |
c. | Við 2. mgr. fylgiskjals I bætast tveir töluliðir, númer 5 og 6, svohljóðandi: |
5. | Af vindlingum sem flokkast í tollskrárnúmer 9801.1041 sem merkt eru með lyklinum T1 skal greiða tóbaksgjald 210 kr. á hvern pakka (20 stk.), sbr. lög nr. 96/1995, um gjald af áfengi og tóbaki, með síðari breytingum. |
6. | Af öðru tóbaki sem flokkast í tollskrárnúmer 9801.1042 sem merkt eru með lyklinum T2 skal greiða tóbaksgjald 10,50 kr. á hvert gramm eða hluta úr grammi vöru, sbr. lög nr. 96/1995, um gjald af áfengi og tóbaki, með síðari breytingum. |
Reglugerð þessi er sett með heimild í 107. gr. tollalaga nr. 55/1987, með síðari breytingum, og öðlast gildi 1. janúar 2002.