191/2008
Reglugerð um tilkynningar um viðskipti skv. 30. gr. laga nr. 108/2007, um verðbréfaviðskipti. - Brottfallin
1. gr.
Gildissvið.
Reglugerð þessi gildir um tilkynningar um viðskipti samkvæmt 30. gr. laga nr. 108/2007, um verðbréfaviðskipti.
2. gr.
Efni tilkynninga um viðskipti.
Tilkynningar um viðskipti til Fjármálaeftirlitsins samkvæmt 30. gr. laga nr. 108/2007, um verðbréfaviðskipti, skulu innihalda eftirtaldar upplýsingar:
- Upplýsingar sem tilgreindar eru í 13. gr. og töflu 1 í I. viðauka við reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1287/2006 frá 10. ágúst 2006 um framkvæmd tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2004/39/EB að því er varðar skyldur fjármálafyrirtækja varðandi skýrsluhald, tilkynningar um viðskipti, gagnsæi á markaði, töku fjármálagerninga til viðskipta og hugtök sem eru skilgreind að því er varðar þá tilskipun, sbr. reglugerð nr. 994/2007 um innleiðingu hennar og fylgiskjal I með reglugerð þessari.
- Auðkenning viðskiptavinar sem fjármálafyrirtæki annast viðskipti fyrir í formi viðskiptanúmers eða reikningsnúmers, þ.e. tölu- og/eða bókstafir og er að hámarki 20 stafir. Auðkenningin skal vera sérkennandi, þannig að hún vísi einungis til viðkomandi viðskiptavinar, og skal notuð í öllum tilkynningum hlutaðeigandi fjármálafyrirtækis til Fjármálaeftirlitsins um viðskipti hans.
3. gr.
Tengdir fjármálagerningar.
Tilkynningarskylda samkvæmt 30. gr. laga nr. 108/2007, um verðbréfaviðskipti, nær til viðskipta með fjármálagerninga sem tengjast fjármálagerningum sem teknir hafa verið til viðskipta á skipulegum markaði, s.s. afleiður.
4. gr.
Gildistaka.
Reglugerð þessi er sett með heimild í 31. gr. laga nr. 108/2007, um verðbréfaviðskipti, og öðlast gildi 1. apríl 2008.
Viðskiptaráðuneytinu, 11. febrúar 2008.
Björgvin G. Sigurðsson.
Áslaug Árnadóttir.
Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)