Fjármála- og efnahagsráðuneyti

1045/2014

Reglugerð um úthlutun og greiðslu fjárframlags ársins 2014 til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða. - Brottfallin

1. gr.

Jöfnun örorkubyrði lífeyrissjóða.

Stuðla skal að því að mismunandi örorkubyrði lífeyrissjóða verði jöfnuð eins og nánar greinir í reglugerð þessari. Ríkissjóður veitir árlegu fjárframlagi til lífeyrissjóða til þess að ná því markmiði samkvæmt ákvæðum VI. kafla laga nr. 113/1990, um tryggingagjald, með síðari breytingum.

Í samræmi við VI. kafla laga nr. 113/1990, skal fjárframlag ríkissjóðs til jöfnunar örorku­byrði lífeyrissjóða fyrir árið 2014 nema 0,325% af gjaldstofni tryggingagjalds skv. III. kafla laga nr. 113/1990. Framlagið skal byggjast á upplýsingum ríkisreiknings um áætl­aðan gjaldstofn tryggingagjalds næstliðins árs.

Fjármála- og efnahagsráðuneytið annast úthlutun og greiðslu framlags til jöfnunar örorku­byrði lífeyrissjóða samkvæmt reglugerð þessari.

2. gr.

Skipting framlagsins milli lífeyrissjóða.

Framlagi til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða skal skipt milli lífeyrissjóða með eftirfarandi hætti:

  1. Fundin er hlutdeild hvers lífeyrissjóðs í heildarörorkulífeyrisgreiðslum allra lífeyris­sjóða á næstliðnu ári.
  2. Fundin er hlutdeild hvers lífeyrissjóðs í skuldbindingum lífeyrissjóða til greiðslu örorkulífeyris umfram 10% af heildarlífeyrisskuldbindingum sjóðanna í framtíðinni vegna væntanlegra iðgjalda miðað við tryggingafræðilega stöðu lífeyrissjóða við lok næstliðins árs. Nú hefur lífeyrissjóður nýtt heimild samkvæmt lögum um skyldu­tryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, nr. 129/1997, til þess að ákveða lágmark tryggingaverndar þannig að iðgjaldi sé varið að hluta til öflunar lífeyris­réttinda í séreign og skal þá verðmæti iðgjaldsgreiðslna vegna réttinda sem aflað er í séreign talið til skuldbindinga sjóðsins í framtíðinni þegar fundin er hlut­deild sjóðsins skv. 1. málsl.
  3. Meðaltalshlutfall skv. 1. og 2. tölul. myndar hlutdeild hvers lífeyrissjóðs í framlagi til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða.

3. gr.

Úthlutun fjárframlags árið 2014.

Samkvæmt 19. gr. laga nr. 113/1990, um tryggingagjald, skal fjárframlag til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða fyrir árið 2014 renna til lífeyrissjóða sem hafa starfsleyfi frá fjármála- og efnahagsráðherra, sbr. ákvæði laga nr. 129/1997, um skyldutryggingu lífeyris­réttinda og starfsemi lífeyrissjóða. Áætlaður gjaldstofn tryggingagjalds árið 2013 nemur samkvæmt ríkisreikningi 2013 samtals kr. 947.769.990.310 og er áætlað fjár­framlag ársins 2013 til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða því með vísan til 1. gr. sam­tals kr. 3.080.252.469 og skiptist það milli lífeyrissjóða sem hér segir:

Lífeyrissjóður

Fjárhæð kr.

Hlutfall

Almenni lífeyrissjóðurinn

35.544.573

1,154%

Eftirlaunasjóður FÍA

10.400.472

0,338%

Eftirlaunasjóður Reykjanesbæjar

511.322

0,017%

Lífeyrissj. starfsm. sveitarfélaganna-B L050EsH

4.457.125

0,145%

Eftirlaunasjóður starfsm. Útvegsbanka Íslands

897.894

0,029%

Festa lífeyrissjóður

313.640.547

10,182%

Frjálsi lífeyrissjóðurinn

126.308.833

4,101%

Gildi lífeyrissjóður

1.109.927.394

36,034%

Íslenski lífeyrissjóðurinn

15.415.123

0,500%

Lífeyrissj. starfsm. sveitarfélaganna-B L140LsA

2.399.517

0,078%

Lífeyrissjóður bankamanna - aldur

19.558.063

0,635%

Lífeyrissjóður bankamanna - hlutfall

19.365.547

0,629%

Lífeyrissjóður bænda

12.636.736

0,410%

Lífeyrissjóður hjúkrunarfræðinga

22.918.619

0,744%

Lífeyrissj. starfsm. sveitarfélaganna-B L510LsN

514.402

0,017%

Lífeyrissjóður Rangæinga

18.672.490

0,606%

Lífeyrissjóður starfsmanna Akureyrarbæjar

2.818.431

0,092%

Lífeyrissjóður starfsm. Búnaðarbanka Íslands hf.

2.727.564

0,089%

Lífeyrissj. starfsm. sveitarfélaganna-B L600LsH

1.481.601

0,048%

Lífeyrissjóður starfsmanna Kópavogsbæjar

1.412.296

0,046%

Lífeyrissjóður starfsmanna Reykjavíkurborgar

23.511.567

0,763%

Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins-A

135.729.785

4,406%

Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins-B

99.328.901

3,225%

Lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga-A

51.718.979

1,679%

Lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga-V

16.416.206

0,533%

Lífeyrissj. starfsm. sveitarfélaganna-B L700LsV

2.008.325

0,065%

Lífeyrissjóður Tannlæknafélags Íslands

1.078.088

0,035%

Lífeyrissjóður verkfræðinga

5.011.571

0,163%

Lífeyrissjóður verslunarmanna

303.692.872

9,859%

Lífeyrissjóður Vestfirðinga

58.363.084

1,895%

Lífeyrissjóður Vestmannaeyja

76.256.270

2,476%

Sameinaði lífeyrissjóðurinn

93.422.517

3,033%

Stafir lífeyrissjóður

75.005.688

2,435%

Stapi lífeyrissjóður

353.203.310

11,467%

Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda

63.896.757

2,074%

Samtals

3.080.252.469

100,000%

Við greiðslu fjárframlags ársins 2015, í október 2015, skal endurreikna, og leiðrétta ef þörf er á, fjárframlag ársins 2014 á grundvelli endurskoðaðra upplýsinga um gjaldstofn tryggingagjalds ársins 2013.

4. gr.

Leiðrétting fjárframlags ársins 2013.

Endurskoðaður gjaldstofn tryggingagjalds vegna ársins 2012 er kr. 880.499.805.193. Mismunur áætlaðs gjaldstofns tryggingagjalds ársins 2012 skv. 3. gr. reglugerðar nr. 1033/2013, um úthlutun og greiðslu fjárframlags ársins 2013 til jöfnunar örorkubyrði líf­eyris­sjóða, og endurskoðaðs gjaldstofns tryggingagjalds vegna ársins 2012 er kr. 2.451.615.819 til lækkunar. Fjárframlag ríkissjóðs til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða fyrir árið 2013 nam 0,325% af gjaldstofni tryggingagjalds, sbr. lög nr. 177/2006, um breyt­ing á lögum nr. 113/1990, um tryggingagjald. Leiðrétting fjárframlags ársins 2013, frá því sem það var ákvarðað með reglugerð nr. 1033/2013, nemur því samtals kr. 7.967.751, til lækkunar. Áætlað fjárframlag ársins 2014 eins og það er ákvarðað skv. 3. gr. lækkar um þær fjárhæðir sem tilgreindar eru í eftirfarandi töflu:

Lífeyrissjóður

Fjárhæð kr.

Hlutfall

Almenni lífeyrissjóðurinn

89.597

1,125%

Eftirlaunasjóður FÍA

24.023

0,302%

Eftirlaunasjóður Reykjanesbæjar

1.275

0,016%

Eftirlaunasj. starfsm. Hafnarfjarðarkaupstaðar (Lífeyrissj. starfsm. sveitarfélaganna-B L050EsH)

7.689

0,097%

Eftirlaunasjóður starfsm. Útvegsbanka Íslands

1.833

0,023%

Festa lífeyrissjóður

786.058

9,866%

Frjálsi lífeyrissjóðurinn

332.932

4,179%

Gildi lífeyrissjóður

2.781.661

34,912%

Íslenski lífeyrissjóðurinn

39.679

0,498%

Lífeyrissjóður Akraneskaupstaðar (Lífeyrissj. starfsm. sveitarfélaganna-B L140LsA)

5.617

0,071%

Lífeyrissjóður bankamanna - aldur

52.308

0,657%

Lífeyrissjóður bankamanna - hlutfall

49.400

0,620%

Lífeyrissjóður bænda

33.664

0,423%

Lífeyrissjóður hjúkrunarfræðinga

64.579

0,811%

Lífeyrissjóður Neskaupstaðar (Lífeyrissj. starfsm. sveitarfélaganna-B L510LsN)

1.474

0,019%

Lífeyrissjóður Rangæinga

49.042

0,616%

Lífeyrissjóður starfsmanna Akureyrarbæjar

6.175

0,078%

Lífeyrissjóður starfsm. Búnaðarbanka Íslands hf.

6.056

0,076%

Lífeyrissjóður starfsm. Húsavíkurkaupstaðar (Lífeyrissj. starfsm. sveitarfélaganna-B L600LsH)

3.625

0,046%

Lífeyrissjóður starfsmanna Kópavogsbæjar

7.290

0,092%

Lífeyrissjóður starfsmanna Reykjavíkurborgar

67.248

0,844%

Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins-A

332.494

4,173%

Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins-B

312.655

3,924%

Lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga-A

100.872

1,266%

Lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga-V

38.444

0,483%

Lífeyrissjóður starfsmanna Vestmannaeyjabæjar (Lífeyrissj. starfsm. sveitarfélaganna-B L700-LsV)

4.980

0,063%

Lífeyrissjóður Tannlæknafélags Íslands

2.908

0,037%

Lífeyrissjóður verkfræðinga

13.466

0,169%

Lífeyrissjóður verslunarmanna

833.467

10,461%

Lífeyrissjóður Vestfirðinga

162.582

2,041%

Lífeyrissjóður Vestmannaeyja

208.914

2,622%

Sameinaði lífeyrissjóðurinn

239.152

3,002%

Stafir lífeyrissjóður

200.349

2,515%

Stapi lífeyrissjóður

935.255

11,738%

Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda

170.988

2,146%

Samtals

7.967.751

100,000%

5. gr.

Gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 22. gr. laga nr. 113/1990, um tryggingagjald, með síðari breytingum, og öðlast þegar gildi.

Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 20. nóvember 2014.

F. h. r.

Hafdís Ólafsdóttir.

Lilja Sturladóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica