1. gr.
Greiða skal til ríkissjóðs bifreiðagjald af bifreiðum sem skráðar eru hér á landi eins og nánar er kveðið á í reglugerð þessari.
Með gjaldskyldri bifreið er átt við vélknúið ökutæki sem uppfyllir eitt eða fleiri eftirtalinna skilyrða:
a. Vélknúið ökutæki sem aðallega er ætlað til fólks- eða vöruflutninga og er á fjórum hjólum eða fleiri eða á þremur hjólum og 400 kg að eigin þyngd eða meira og hannað er til hraðari aksturs en 30 km á klukkustund eða aka má svo hratt án verulegra breytinga.
b. Vélknúið ökutæki sem aðallega er ætlað til að draga annað ökutæki og hannað er til hraðari aksturs en 30 km á klukkustund.
c. Vélknúið ökutæki sem aðallega er ætlað til fólks- eða vöruflutninga eða til að draga annað ökutæki og er búið beltum og eftir atvikum stýrimeiðum/stýrihjólum og er 400 kg að eigin þyngd eða meira.
d. Fjórhjól er fellur í vörulið 8703 í viðauka I við tollalög, nr. 55/1987, með síðari breytingum.
2. gr.
Bifreiðagjald skal sá greiða sem er skráður eigandi á gjalddaga. Hafi orðið eigendaskipti að bifreið án þess að það hafi verið tilkynnt til skráningar hvílir greiðsluskyldan jafnframt á hinum nýja eiganda.
3. gr.
Bifreiðagjald skal reiknast af eigin þyngd bifreiðar. Gjaldið er 5,86 kr. á hvert kg af fyrstu 1.000 kg eigin þyngdar, en 9,66 kr. á hvert kg eigin þyngdar umfram það og allt að 3.000 kg eigin þyngdar, en 2.000 kr. af hverju byrjuðu tonni eigin þyngdar umfram 3.000 kg. Þó skal aldrei greiða lægra gjald en 2.993 kr. af hverri bifreið á hverju gjaldtímabili.
4. gr.
Gjalddagar bifreiðagjalds eru 1. janúar ár hvert vegna gjaldtímabilsins 1. janúar til 30. júní og 1. júlí ár hvert vegna gjaldtímabilsins 1. júlí til 31. desember. Eindagar bifreiðagjalds eru 15. febrúar og 15. ágúst ár hvert.
Sé bifreiðagjald ekki greitt í síðasta lagi á eindaga skal greiða ríkissjóði dráttarvexti, sbr. III. kafla laga nr. 25/1987, af því sem ógreitt er, talið frá og með gjalddaga.
Gjald vegna nýskráðra bifreiða skal greiðast í hlutfalli við skráningartíma þeirra á gjaldtímabilinu og telst gjaldskyldan frá og með afhendingu skráningarmerkis. Gjaldið reiknast fyrir heila mánuði þannig, að 15 dagar eða fleiri teljast heill mánuður en færri dögum skal sleppt. Bifreiðagjald skal þó aldrei vera lægra en 523 kr. Gjald vegna nýskráðra bifreiða fellur í eindaga við skráningu.
Ef bifreiðir sem hafa verið undanþegnar bifreiðagjaldi samkvæmt d-lið 5. gr. eru settar á skráningarmerki að nýju, skal greiða bifreiðagjald í hlutfalli við þann tíma sem eftir er af gjaldtímabilinu þegar skráningarmerki eru sett á bifreiðina og telst gjaldskyldan frá og með afhendingu skráningarmerkis. Gjaldið reiknast fyrir heila mánuði þannig, að 15 dagar eða fleiri teljast heill mánuður en færri dögum skal sleppt. Bifreiðagjald skal þó aldrei vera lægra en 1.141 kr. Gjald vegna skráðra bifreiða sem skráningarmerki eru sett á að nýju fellur í eindaga við afhendingu skráningarmerkis.
Við afskráningu bifreiða skal endurgreiða eða fella niður bifreiðagjald í hlutfalli við þann tíma sem eftir er af því gjaldtímabili sem er að líða þegar afskráning fer fram.
Endurgreiðslu bifreiðagjalds vegna afskráningar eða innlagnar skráningarmerkja annast innheimtumaður ríkissjóðs í viðkomandi umdæmi, í Reykjavík tollstjóri.
Eigi skal endurgreiða gjald af bifreið sem greitt hefur verið af þótt eigendaskipti verði.
5. gr.
Eftirtaldar bifreiðir skulu undanþegnar bifreiðagjaldi:
a. Bifreiðir í eigu þeirra sem njóta örorkustyrks, örorkubóta, bensínstyrks eða umönnunarbóta og -greiðslna vegna örorku barna frá Tryggingastofnun ríkisins. Jafnframt eiga þeir öryrkjar sem notið hafa niðurfellingar skv. 1. málsl. rétt á niðurfellingu ef þeir hafa öðlast rétt til ellilífeyrisgreiðslna eða dveljast á stofnun, sbr. 43. gr. laga nr. 117/1993, um almannatryggingar. Réttur til niðurfellingar bifreiðagjalds vegna þeirra sem njóta örorkustyrks, örorkubóta eða bensínstyrks er bundinn því skilyrði að bóta- eða styrkhafi sé annað hvort skráður eigandi í ökutækjaskrá eða skráður umráðamaður í ökutækjaskrá samkvæmt eignarleigusamningi. Réttur til niðurfellingar bifreiðagjalds af bifreiðum í eigu þeirra sem fá greiddar umönnunarbætur eða -greiðslur vegna örorku barna nær til einnar bifreiðar og er bundinn því skilyrði að skráður eigandi bifreiðar samkvæmt ökutækjaskrá fari með forsjá barnsins. Óheimilt er að fella niður bifreiðagjald af bifreiðum sem eru yfir 3.500 kg að eigin þyngd og nýttar eru í atvinnurekstri. Ef sá sem á rétt á niðurfellingu bifreiðagjalds á fleiri en eina bifreið skal bifreiðagjald fellt niður af þeirri bifreið sem er þyngst.
b. Bifreiðir í eigu björgunarsveita.
c. Bifreiðir sem eru eldri en 25 ára í upphafi gjaldárs talið frá og með árgerðarári þeirra.
d. Bifreiðir hverra skráningarmerki hafa verið afhent skráningaraðila til varðveislu í minnst þrjá mánuði samfellt. Undanþága þessi miðast við dagsetningu innlagnar skráningarmerkja. Jafnframt er innheimtumönnum ríkissjóðs heimilt að fella niður bifreiðagjald af ónýtum bifreiðum sem sannanlega hafa ekki verið í notkun á gjaldtímabili.
6. gr.
Við árlega aðalskoðun bifreiðar skal eigandi hennar eða umráðamaður færa sönnur á að greitt hafi verið af henni gjaldfallið bifreiðagjald. Að öðrum kosti skal skoðunarmaður neita um skoðun á bifreiðinni. Eiganda eða umráðamanni bifreiðar er þó ekki skylt að færa sönnur á að hafa greitt gjaldfallið bifreiðagjald fyrr en eftir eindaga.
Skráning bifreiðar skal ekki fara fram nema gjaldfallið bifreiðagjald hafi áður verið greitt af henni.
Óheimilt er að afhenda skráningarmerki sem afhent hafa verið til skráningaraðila til varðveislu nema greitt hafi verið bifreiðagjald fyrir þann tíma sem eftir er af gjaldtímabilinu.
Ef bifreiðagjald er ekki greitt fyrir eindaga skal lögreglustjóri, eftir kröfu innheimtumanns, taka skráningarmerki af bifreiðinni og afhenda skráningaraðila til geymslu.
Óheimilt er að skrá eigendaskipti að bifreið nema gjaldfallið bifreiðagjald hafi áður verið greitt.
7. gr.
Innheimtumaður ríkissjóðs annast álagningu, niðurfellingu, innheimtu og aðra framkvæmd bifreiðagjalds samkvæmt reglugerð þessari. Heimilt er að fela skoðunarstöðvum innheimtu bifreiðagjalds.
Ákvörðun innheimtumanns ríkissjóðs um bifreiðagjald er kæranleg til fjármálaráðuneytisins í samræmi við stjórnsýslulög nr. 37/1993.
8. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 8. gr. laga nr. 39/1988, um bifreiðagjald með síðari breytingum, og öðlast gildi þann 1. júlí 1998. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 381/1994, um bifreiðagjald, með síðari breytingum.
Fjármálaráðuneytinu, 23. júní 1998.
F. h. r.
Bergþór Magnússon.
Margrét Gunnlaugsdóttir.