1. gr.
Viðmiðunarfjárhæðir vegna skyldu til útboðs á Evrópska efnahagssvæðinu samkvæmt 78. gr. laga nr. 84/2007 um opinber innkaup skulu vera sem hér segir:
Opinberir aðilar að frátöldum sveitarfélögum, stofnunum þeirra, öðrum opinberum aðilum á þeirra vegum eða samtökum sem þessir aðilar kunna að hafa með sér:
Vörusamningar 21.540.485 kr.
Þjónustusamningar 21.540.485 kr.
Verksamningar 828.480.200 kr.
Sveitarfélög, stofnanir þeirra, aðrir opinberir aðilar á þeirra vegum og samtök sem þessir aðilar kunna að hafa með sér:
Vörusamningar 33.139.208 kr.
Þjónustusamningar 33.139.208 kr.
Verksamningar 828.480.200 kr.
2. gr.
Viðmiðunarfjárhæðir vegna kostnaðarþátttöku opinberra aðila sbr. 13. gr. laga nr. 84/2007 um opinber innkaup skulu vera 828.480.200 kr. vegna verksamninga og 33.139.208 kr. vegna þjónustusamninga.
3. gr.
Viðmiðunarfjárhæð vegna kynningarauglýsingar á Evrópska efnahagssvæðinu vegna áætlaðra kaupa á einu ári er 63.870.000 kr. fyrir vöru- og þjónustusamninga og 828.480.200 kr. fyrir verksamninga, sbr. 35. gr. tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2004/18/EB. Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2004/18/EB er birt sem fylgiskjal við lög nr. 84/2007 um opinber innkaup.
4. gr.
Viðmiðunarfjárhæð vegna gerðar sérleyfissamninga um verk er 828.480.200 kr., sbr. 56. og 63. gr. tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2004/18/EB.
5. gr.
Viðmiðunarfjárhæð vegna hönnunarsamkeppni, sbr. 67. gr. tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2004/18/EB, skulu vera sem hér segir:
Opinberir aðilar að frátöldum sveitarfélögum, stofnunum þeirra, öðrum opinberum aðilum á þeirra vegum eða samtökum sem þessir aðilar kunna að hafa með sér: 21.540.485 kr.
Sveitarfélög, stofnanir þeirra, aðrir opinberir aðilar á þeirra vegum og samtök sem þessir aðilar kunna að hafa með sér: 33.139.208 kr.
6. gr.
Viðmiðunarfjárhæðir skv. 1.-5. gr. reglugerðar þessarar gilda einnig um útboðsskyldu vegna innkaupa samkvæmt samningi Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar (WTO) um opinber innkaup sem Ísland er aðili að.
7. gr.
Reglugerð þessi er sett til innleiðingar á reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1251/2011 frá 30. nóvember 2011 um breytingu á tilskipunum Evrópuþingsins og ráðsins 2004/17/EB, 2004/18/EB og 2009/81/EB að því er varðar beitingu viðmiðunarfjárhæða við útboð og gerð samninga, sem vísað er til í XVI. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 67/2012, þann 31. mars 2012.
Reglugerðin er sett með heimild í 78. gr. laga nr. 84/2007 um opinber innkaup og tekur þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð nr. 229/2010 um viðmiðunarfjárhæðir vegna opinberra innkaupa á Evrópska efnahagssvæðinu og samkvæmt samningi Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar (WTO) um opinber innkaup.
Fjármálaráðuneytinu, 29. júní 2012.
F. h. r.
Þórhallur Arason.
Guðrún Ögmundsdóttir.