1598/2022
Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 359/2010, um meðferð krafna Íbúðalánasjóðs sem glatað hafa veðtryggingu, með síðari breytingum.
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 3. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar:
- Í stað fjárhæðarinnar "7.290.000 kr." í 1. tölul. kemur: 8.064.000 kr.
- Í stað fjárhæðanna "4.063.000 kr.", "4.791.180 kr." og "639.000 kr." í 2. tölul. kemur: 4.495.000 kr.; 5.300.000 kr.; og 707.000 kr.
2. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 47. og 50. gr. laga um húsnæðismál, nr. 44/1998, með síðari breytingum, öðlast gildi 1. janúar 2023.
Innviðaráðuneytinu, 22. desember 2022.
Sigurður Ingi Jóhannsson.
Ingilín Kristmannsdóttir.