1. gr.
Í stað "17.180 kr." í 1. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar kemur: 17.781 kr.
2. gr.
Gildistaka.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 14. gr., sbr. 10. gr. laga nr. 99/2007, um félagslega aðstoð, með síðari breytingum, sbr. einnig 70. gr. laga nr. 100/2007, um almannatryggingar, með síðari breytingum, öðlast gildi 1. janúar 2020. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 1206/2018, um breytingu á reglugerð nr. 170/2009, um styrki og uppbætur til hreyfihamlaðra einstaklinga vegna bifreiða.
Félagsmálaráðuneytinu, 13. desember 2019.
Ásmundur Einar Daðason.
Gunnhildur Gunnarsdóttir.