Velferðarráðuneyti

1188/2017

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 1218/2008, um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði og greiðslu fæðingarstyrks, með síðari breytingum. - Brottfallin

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 3. gr. reglugerðarinnar:

  1. Í stað "500.000 kr." í 5. mgr. kemur: 520.000 kr.
  2. Eftirfarandi breytingar verða á 6. mgr.:
    1. Í stað "118.335 kr." kemur: 123.897 kr.
    2. Í stað "164.003 kr." kemur: 171.711 kr.

2. gr.

Í stað "71.563 kr." í 2. mgr. 14. gr. reglugerðarinnar kemur: 74.926 kr.

3. gr.

Í stað "164.003 kr." í 2. mgr. 15. gr. reglugerðarinnar kemur: 171.711 kr.

4. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 8. mgr. 13. gr., 5. mgr. 18. gr., 5. mgr. 19. gr. og 35. gr. laga nr. 95/2000, um fæðingar- og foreldraorlof, með síðari breytingum, öðlast gildi 1. janúar 2018 og á við um foreldra barna sem fæðast, eru ættleidd eða tekin í varanlegt fóstur 1. janúar 2018 eða síðar.

Velferðarráðuneytinu, 29. desember 2017.

Ásmundur Daðason
félags- og jafnréttismálaráðherra.

Hanna Sigr. Gunnsteinsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica