1. gr.
Fjárhæðir greiðslna og frítekjumarks samkvæmt lögum um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna skulu vera sem hér segir fyrir árið 2012:
2. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 10. mgr. 11. gr., 3. mgr. 16. gr., 4. mgr. 20. gr., 4. mgr. 21. gr. og 2. mgr. 22. gr., sbr. 31. gr. laga nr. 22/2006, um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna, sbr. lög nr. 158/2007, öðlast gildi 1. janúar 2012. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 1008/2010 um fjárhæðir greiðslna og frítekjumarks fyrir árið 2011 samkvæmt lögum um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna, með síðari breytingu.
Velferðarráðuneytinu, 22. desember 2011.
Guðbjartur Hannesson.
Hanna Sigríður Gunnsteinsdóttir.