1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 3. gr. reglugerðarinnar:
Sá tími sem starfsþjálfun atvinnuleitanda skv. 1. mgr. stendur yfir telst hvorki til ávinnslutímabils skv. 15. eða 19. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. einnig e-lið 1. mgr. 13. gr. og e-lið 1. mgr. 18. gr. laganna, né til þess tímabils sem heimilt er að greiða viðkomandi atvinnuleitanda atvinnuleysisbætur skv. 29. gr. sömu laga, sbr. einnig ákvæði til bráðabirgða X sömu laga.
2. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 4. gr. reglugerðarinnar:
Sá tími sem reynsluráðning atvinnuleitanda skv. 1. mgr. stendur yfir telst hvorki til ávinnslutímabils skv. 15. eða 19. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. einnig e-lið 1. mgr. 13. gr. og e-lið 1. mgr. 18. gr. laganna, né til þess tímabils sem heimilt er að greiða viðkomandi atvinnuleitanda atvinnuleysisbætur skv. 29. gr. sömu laga, sbr. einnig ákvæði til bráðabirgða X sömu laga.
3. gr.
Á eftir 4. gr. reglugerðarinnar kemur ný grein, 4. gr. a, svohljóðandi, ásamt fyrirsögn:
Vinnustaðaþjálfun.
Vinnumálastofnun er heimilt að gera samning við fyrirtæki eða stofnun um vinnustaðaþjálfun atvinnuleitanda sem telst tryggður innan atvinnuleysistryggingakerfisins enda um að ræða vinnumarkaðsúrræði skv. d-lið 1. mgr. 12. gr. laga nr. 55/2006, um vinnumarkaðsaðgerðir, með síðari breytingum. Vinnumálastofnun, fyrirtækið eða stofnunin og atvinnuleitandinn skulu undirrita samninginn um samþykki sitt. Með undirritun sinni samþykkir atvinnuleitandinn jafnframt að sinna því starfi sem honum er falið á grundvelli samningsins undir leiðsögn viðkomandi vinnuveitanda eða fulltrúa hans. Þá samþykkir Vinnumálastofnun með undirritun sinni að greiða atvinnuleitandanum atvinnuleysisbætur sem hann á rétt til á grundvelli laga um atvinnuleysistryggingar og fyrirtækið eða stofnunin samþykkir að sjá til þess að atvinnuleitandinn sé sjúkra- og slysatryggður við störf sín. Markmið samningsins er að atvinnuleitandinn fái tækifæri til að þjálfa sig og undirbúa fyrir frekari þátttöku á vinnumarkaði.
Samningurinn skal vera gerður að hámarki til átta vikna og óheimilt er að framlengja hann vegna sama atvinnuleitanda nema atvinnuleitandinn hafi skerta starfsorku og nauðsynlegt sé að veita honum lengri tíma til hæfingar að mati ráðgjafa Vinnumálastofnunar.
Fyrirtækið eða stofnunin skal tilnefna sérstakan tengilið sem skal vera leiðbeinandi atvinnuleitanda á vinnustað auk þess að vera í reglulegum samskiptum við ráðgjafa Vinnumálastofnunar á gildistíma samningsins skv. 1. mgr. til að meta framvindu hans. Atvinnuleitandi skal jafnframt vera í reglulegum samskiptum við ráðgjafa Vinnumálastofnunar en hann þarf ekki að vera í virkri atvinnuleit á sama tíma. Enn fremur skal atvinnuleitandi sækja námskeið sem skipulagt er sem hluti vinnustaðaþjálfunar.
Sá tími sem vinnustaðaþjálfun atvinnuleitanda skv. 1. mgr. stendur yfir telst ekki til ávinnslutímabils skv. 15. eða 19. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. einnig e-lið 1. mgr. 13. gr. og e-lið 1. mgr. 18. gr. laganna.
4. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 8. gr. reglugerðarinnar:
i) |
Á eftir orðunum "felur ekki í sér" kemur: verulega. |
ii) |
Orðin "Með undirritun sinni samþykkir atvinnuleitandinn að Vinnumálastofnun greiði grunnatvinnuleysisbætur hans ásamt 8% mótframlagi í lífeyrissjóð beint til fyrirtækisins eða stofnunarinnar sem greiðir honum laun." falla brott. |
iii) |
Í stað orðanna "á rétt til" kemur: ætti ella rétt til. |
Sá tími sem ráðning atvinnuleitanda á grundvelli frumkvöðlasamnings skv. 1. mgr. stendur yfir telst hvorki til ávinnslutímabils skv. 15. eða 19. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. einnig e-lið 1. mgr. 13. gr. og e-lið 1. mgr. 18. gr. laganna, né til þess tímabils sem heimilt er að greiða viðkomandi atvinnuleitanda atvinnuleysisbætur skv. 29. gr. sömu laga, sbr. einnig ákvæði til bráðabirgða X sömu laga.
5. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 9. gr. reglugerðarinnar:
Sá tími sem þátttaka atvinnuleitanda í átaksverkefni skv. 1. mgr. stendur yfir telst hvorki til ávinnslutímabils skv. 15. eða 19. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. einnig e-lið 1. mgr. 13. gr. og e-lið 1. mgr. 18. gr. laganna, né til þess tímabils sem heimilt er að greiða viðkomandi atvinnuleitanda atvinnuleysisbætur skv. 29. gr. sömu laga, sbr. einnig ákvæði til bráðabirgða X sömu laga.
6. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 1. mgr. 12. gr. reglugerðarinnar:
7. gr.
19. gr. reglugerðarinnar fellur brott.
8. gr.
20. gr. reglugerðarinnar fellur brott.
9. gr.
Við reglugerðina bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi, ásamt fyrirsögn:
Ráðning í starf í tengslum við verkefnið "Vinnandi vegur".
Á tímabilinu 22. febrúar 2012 til 31. maí 2012 er Vinnumálastofnun heimilt að gera samning við fyrirtæki eða stofnun sem ræður til starfa atvinnuleitanda sem er tryggður innan atvinnuleysistryggingakerfisins um greiðslu styrks úr Atvinnuleysistryggingasjóði til handa hlutaðeigandi fyrirtæki eða stofnun vegna ráðningarinnar enda um að ræða vinnumarkaðsúrræði skv. b-lið 1. mgr. 12. gr. laga nr. 55/2006, um vinnumarkaðsaðgerðir, með síðari breytingum. Markmið slíks samnings er meðal annars að stuðla að framtíðarráðningu viðkomandi atvinnuleitanda innan hlutaðeigandi fyrirtækis eða stofnunar. Vinnumálastofnun er heimilt að greiða styrk samkvæmt ákvæði þessu með eftirfarandi hætti:
Vinnumálastofnun, fyrirtækið eða stofnunin og atvinnuleitandinn skulu undirrita samninginn um samþykki sitt.
Skilyrði fyrir greiðslu styrks á grundvelli samnings skv. 1. mgr. eru:
Samningur skv. 1. mgr. fellur úr gildi komi til slita á ráðningarsambandi milli hlutaðeigandi fyrirtækis eða stofnunar og viðkomandi atvinnuleitanda á gildistíma samningsins. Hið sama gildir séu skilyrði fyrir greiðslu styrks úr Atvinnuleysistryggingasjóði samkvæmt ákvæði þessu ekki lengur uppfyllt að mati Vinnumálastofnunar.
Vinnumálastofnun er óheimilt að greiða styrk samkvæmt ákvæði þessu lengur en samtals tólf mánuði vegna sama atvinnuleitanda, sbr. þó a-lið 1. mgr.
Sá tími sem ráðning atvinnuleitanda skv. 1. mgr. stendur yfir telst hvorki til ávinnslutímabils skv. 15. eða 19. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. einnig e-lið 1. mgr. 13. gr. og e-lið 1. mgr. 18. gr. laganna, né til þess tímabils sem heimilt er að greiða viðkomandi atvinnuleitanda atvinnuleysisbætur skv. 29. gr. sömu laga, sbr. einnig ákvæði til bráðabirgða X sömu laga.
10. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 62. gr. og 64. gr. laga nr. 54/2006, um atvinnuleysistryggingar, með síðari breytingum, að fenginni umsögn stjórnar Atvinnuleysistryggingasjóðs, og 3. mgr. 12. gr. laga nr. 55/2006, um vinnumarkaðsaðgerðir, með síðari breytingum, að fenginni umsögn stjórnar Vinnumálastofnunar, öðlast þegar gildi.
Velferðarráðuneytinu, 20. febrúar 2012.
Guðbjartur Hannesson.
Hanna Sigr. Gunnsteinsdóttir.