1204/2018
Reglugerð um fjárhæð atvinnuleysistrygginga.
1. gr.
Hámarksfjárhæð tekjutengdra atvinnuleysisbóta í hverjum mánuði skv. 32. gr. laga um atvinnuleysistryggingar miðast við tryggingahlutfall hins tryggða þannig að þær nemi aldrei hærri fjárhæð en 440.970 kr. á mánuði miðað við óskerta atvinnuleysistryggingu, sbr. 15. eða 19. gr. laganna. Til að finna út atvinnuleysisbætur fyrir hvern dag skal miða við 21,67 daga í mánuði.
2. gr.
Sá sem telst að fullu tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar á rétt til óskertra grunnatvinnuleysisbóta sem skulu nema 279.720 kr. á mánuði. Lágmarksréttur til atvinnuleysistrygginga veitir rétt til ¼ hluta grunnatvinnuleysisbóta.
3. gr.
Frítekjumark skv. 2. mgr. 36. gr. laga um atvinnuleysistryggingar skal vera 68.852 kr. á mánuði.
4. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 3. mgr. 33. gr. og 4. mgr. 36. gr. laga nr. 54/2006, um atvinnuleysistryggingar, með síðari breytingum, kemur í stað reglugerðar nr. 548/2006, um sama efni, með síðari breytingum, og öðlast gildi 1. janúar 2019.
Velferðarráðuneytinu, 17. desember 2018.
Ásmundur Einar Daðason
félags- og jafnréttismálaráðherra.
Hanna Sigr. Gunnsteinsdóttir.
Reglugerðir sem falla brott:
- 1199/2017 Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 548/2006, um fjárhæð atvinnuleysistrygginga, með síðari breytingum.
- 1244/2016 Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 548/2006, um fjárhæð atvinnuleysistrygginga, með síðari breytingum.
- 1226/2015 Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 548/2006, um fjárhæð atvinnuleysistrygginga, með síðari breytingum.
- 1223/2014 Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 548/2006, um fjárhæð atvinnuleysistrygginga, með síðari breytingum.
- 82/2014 Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 548/2006, um fjárhæð atvinnuleysistrygginga.
- 1206/2012 Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 548/2006, um fjárhæð atvinnuleysistrygginga.
- 1224/2011 Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 548/2006, um fjárhæð atvinnuleysistrygginga.
- 566/2011 Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 548/2006, um fjárhæð atvinnuleysistrygginga.
- 1219/2008 Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 548/2006, um fjárhæð atvinnuleysistrygginga.
- 294/2008 Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 548/2006, um fjárhæð atvinnuleysistrygginga.
- 1253/2007 Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 548/2006, um fjárhæð atvinnuleysistrygginga.
- 1103/2006 Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 548/2006, um fjárhæð atvinnuleysistrygginga.
- 548/2006 Reglugerð um fjárhæð atvinnuleysistrygginga.