I. KAFLI
Gildissvið og markmið.
1. gr.
Gildissvið.
Reglugerð þessi gildir um þátttöku atvinnuleitenda sem eru tryggðir innan atvinnuleysistryggingakerfisins í vinnumarkaðsaðgerðum sem og um greiðslu styrkja úr Atvinnuleysistryggingasjóði vegna þátttöku þeirra í vinnumarkaðsaðgerðum. Ennfremur gildir reglugerð þessi um greiðslu styrkja til atvinnuleitenda vegna búferlaflutninga þeirra innanlands í þeim tilvikum þegar þeir þiggja störf fjarri lögheimili sínu.
2. gr.
Markmið.
Markmið reglugerðar þessarar er að stuðla að þátttöku atvinnuleitenda í vinnumarkaðsaðgerðum sem og að auðvelda þeim að þiggja starf fjarri lögheimili sínu.
II. KAFLI
Þátttaka atvinnuleitenda í vinnumarkaðsaðgerðum.
3. gr.
Vinnustaðaþjálfun.
Vinnumálastofnun er heimilt að gera samning við fyrirtæki eða stofnun um vinnustaðaþjálfun atvinnuleitanda sem telst tryggður innan atvinnuleysistryggingakerfisins enda telst þjálfunin vinnumarkaðsúrræði skv. b. eða d. lið 1. mgr. 12. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir, með síðari breytingum, að mati ráðgjafa Vinnumálastofnunar. Vinnumálastofnun, hlutaðeigandi fyrirtæki eða stofnun og viðkomandi atvinnuleitandi skulu undirrita samninginn. Með undirritun sinni skuldbindur viðkomandi atvinnuleitandi sig til að sinna þeim störfum sem honum eru falin á grundvelli samningsins undir leiðsögn leiðbeinanda. Þá skuldbindur hlutaðeigandi fyrirtæki eða stofnun sig með undirritun sinni til að sjá til þess að atvinnuleitandinn sé slysatryggður við störf sín. Hafi atvinnuleitandinn áður lokið starfstengdu námi skal fyrirtækið sjá um að störf hans hjá fyrirtækinu séu innan menntunarsviðs hans. Við lok gildistíma samnings skal hlutaðeigandi fyrirtæki eða stofnun veita Vinnumálastofnun umsögn um störf viðkomandi atvinnuleitanda hjá fyrirtækinu eða stofnuninni, eftir því sem við á. Markmið samningsins er að viðkomandi atvinnuleitandi fái tækifæri til að þjálfa sig og undirbúa fyrir frekari þátttöku á vinnumarkaði. Á gildistíma samningsins fær viðkomandi atvinnuleitandi greiddar atvinnuleysisbætur á grundvelli laga um atvinnuleysistryggingar, með síðari breytingum.
Gildistími samnings skv. 1. mgr. getur að hámarki verið átta vikur og óheimilt er að framlengja gildistíma samningsins vegna sama atvinnuleitanda.
Hlutaðeigandi fyrirtæki eða stofnun skal tilnefna sérstakan tengilið sem skal vera leiðbeinandi viðkomandi atvinnuleitanda á vinnustaðnum auk þess sem tengiliðurinn skal vera í samskiptum við ráðgjafa Vinnumálastofnunar á gildistíma samnings skv. 1. mgr. eftir því sem þörf krefur. Viðkomandi atvinnuleitandi skal einnig vera í reglulegum samskiptum við ráðgjafa Vinnumálastofnunar á gildistíma samnings. Ennfremur ber viðkomandi atvinnuleitanda að sækja námskeið sem skipulagt er sem hluti vinnustaðaþjálfunar á grundvelli samnings skv. 1. mgr. Ekki er gerð krafa um að viðkomandi atvinnuleitandi sé í virkri atvinnuleit á gildistíma samnings skv. 1. mgr.
Sá tími sem vinnustaðaþjálfun atvinnuleitanda stendur yfir á grundvelli samnings skv. 1. mgr. telst ekki til ávinnslutímabils skv. 15. eða 19. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, með síðari breytingum, sbr. einnig e. lið 1. mgr. 13. gr. og e. lið 1. mgr. 18. gr. laganna.
4. gr.
Námssamningur.
Vinnumálastofnun er heimilt að gera sérstakan námssamning við atvinnuleitanda sem er tryggður innan atvinnuleysistryggingakerfisins enda ekki talið líklegt að viðkomandi atvinnuleitanda verði boðið starf á gildistíma samningsins að mati ráðgjafa Vinnumálastofnunar. Vinnumálastofnun og viðkomandi atvinnuleitandi skulu undirrita samninginn. Með undirritun sinni skuldbindur viðkomandi atvinnuleitandi sig til að stunda starfstengt nám sem hann hefur valið sér í samráði við ráðgjafa Vinnumálastofnunar eftir að færni hans og staða hefur verið metin. Á gildistíma samningsins fær viðkomandi atvinnuleitandi greiddar atvinnuleysisbætur á grundvelli laga um atvinnuleysistryggingar, með síðari breytingum.
Skilyrði fyrir samningi skv. 1. mgr. eru meðal annars:
Á gildistíma samnings skv. 1. mgr. skal viðkomandi atvinnuleitandi fullnægja skilyrðum um mætingu sem og öðrum skilyrðum sem sett eru í tengslum við námið af hlutaðeigandi skóla, svo sem hvað varðar reglulega ástundun þess. Auk þess ber viðkomandi atvinnuleitanda að vera í reglulegum samskiptum við ráðgjafa Vinnumálastofnunar á gildistíma samnings. Viðkomandi atvinnuleitandi skal vera í virkri atvinnuleit á gildistíma samnings og vera reiðubúinn að taka starfi sem honum kann að bjóðast á gildistímanum.
Gildistími samnings skv. 1. mgr. getur að hámarki verið ein námsönn. Heimilt er að framlengja gildistíma samningsins vegna sama atvinnuleitanda enda hafi hann sýnt viðunandi námsárangur að mati hlutaðeigandi skóla og uppfyllt þau skilyrði sem sett eru í tengslum við námið, sbr. 2. og 3. mgr. Ekki er þó heimilt að framlengja gildistíma samnings þar sem um hefur verið að ræða 75% nám eða meira.
Sá tími sem starfstengt nám atvinnuleitanda stendur yfir á grundvelli samnings skv. 1. mgr. telst ekki til ávinnslutímabils skv. 15. eða 19. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, með síðari breytingum, sbr. einnig e. lið 1. mgr. 13. gr. og e. lið 1. mgr. 18. gr. laganna.
5. gr.
Þróun eigin viðskiptahugmyndar.
Vinnumálastofnun er heimilt að gera sérstakan samning við atvinnuleitanda sem er tryggður innan atvinnuleysistryggingakerfisins um að hann starfi að þróun eigin viðskiptahugmyndar í allt að sex mánuði með það að markmiði að koma hugmyndinni í framkvæmd. Vinnumálastofnun og viðkomandi atvinnuleitandi skulu undirrita samninginn. Með undirritun sinni skuldbindur viðkomandi atvinnuleitandi sig til að skila framvinduskýrslu til Vinnumálastofnunar, sbr. 2. mgr. Á gildistíma samningsins fær viðkomandi atvinnuleitandi greiddar atvinnuleysisbætur á grundvelli laga um atvinnuleysistryggingar, með síðari breytingum.
Skilyrði samnings skv. 1. mgr. er að fyrir liggi viðskiptaáætlun og að viðkomandi atvinnuleitandi skili framvinduskýrslu til Vinnumálastofnunar eftir þrjá mánuði og aftur við lok verkefnisins. Vinnumálastofnun er ennfremur heimilt að óska eftir að Nýsköpunarmiðstöð Íslands og/eða aðrir þar til bærir aðilar að mati ráðgjafa Vinnumálastofnunar votti um gildi viðskiptaáætlunarinnar samkvæmt nánari reglum þar um. Jafnframt er það skilyrði að viðskiptahugmyndin verði talin vinnumarkaðsúrræði skv. b. lið 1. mgr. 12. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir, með síðari breytingum, að mati ráðgjafa Vinnumálastofnunar og líkleg til að veita atvinnuleitandanum framtíðarstarf að mati ráðgjafa stofnunarinnar. Þá er það skilyrði fyrir samningi skv. 1. mgr. að viðkomandi atvinnuleitandi hafi kynnt sér rekstur og stofnun fyrirtækja.
Á gildistíma samnings skv. 1. mgr. ber viðkomandi atvinnuleitanda að vera í reglulegum samskiptum við ráðgjafa Vinnumálastofnunar. Ekki er gerð krafa um að viðkomandi atvinnuleitandi sé í virkri atvinnuleit á gildistíma samnings en hann skal þó viðhalda skráningu sinni hjá Vinnumálastofnun mánaðarlega.
Vinnumálastofnun er heimilt að rifta samningi skv. 1. mgr. ef ljóst þykir að mati ráðgjafa Vinnumálastofnunar að sú viðskiptahugmynd sem um ræðir muni ekki skila þeim árangri sem vænst var þegar samningurinn var gerður. Áður en samningi er rift skal gefa atvinnuleitanda kost á að koma á framfæri við Vinnumálastofnun mati sínu á árangri verkefnisins sem um ræðir til lengri tíma litið.
Heimilt er að framlengja gildistíma samnings skv. 1. mgr. vegna sama atvinnuleitanda enda mjög miklar líkur taldar á að viðskiptahugmyndin skapi atvinnuleitandanum framtíðarstarf að mati ráðgjafa Vinnumálastofnunar. Í slíkum tilvikum er einungis heimilt að framlengja gildistíma samnings einu sinni í aðra sex mánuði að hámarki enda liggi fyrir ný viðskiptaáætlun, sbr. 2. mgr., auk þess sem viðkomandi atvinnuleitanda ber að skila nýrri framvinduskýrslu, sbr. 2. mgr., til Vinnumálastofnunar í lok þess tímabils.
Sá tími sem atvinnuleitandi starfar að þróun eigin viðskiptahugmyndar á grundvelli samnings skv. 1. mgr. telst ekki til ávinnslutímabils skv. 15. eða 19. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. einnig e. lið 1. mgr. 13. gr. og e. lið 1. mgr. 18. gr. laganna.
6. gr.
Atvinnutengd endurhæfing.
Vinnumálastofnun er heimilt að gera sérstakan starfsendurhæfingarsamning við atvinnuleitanda sem er tryggður innan atvinnuleysistryggingakerfisins um atvinnutengda endurhæfingu skv. e. eða f. lið 1. mgr. 12. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir, með síðari breytingum. Markmiðið með starfsendurhæfingarsamningi er að auka líkur á að viðkomandi atvinnuleitandi fái starf við hæfi á vinnumarkaði að lokinni endurhæfingu. Skilyrði fyrir gerð samnings um atvinnutengda endurhæfingu er að viðkomandi atvinnuleitandi þurfi á slíkri endurhæfingu að halda að mati ráðgjafa Vinnumálastofnunar og að gerð hafi verið starfsendurhæfingaráætlun sem líkur eru á að nýtist atvinnuleitandanum við atvinnuleit.
Vinnumálastofnun og viðkomandi atvinnuleitandi skulu undirrita samninginn. Með undirritun sinni skuldbindur atvinnuleitandi sig til að taka fullan þátt í starfsendurhæfingaráætlun sem hann hefur gert í samvinnu við ráðgjafa Vinnumálastofnunar og/eða aðra þjónustuaðila, eftir því sem við á, sbr. 15. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir. Á gildistíma samningsins fær viðkomandi atvinnuleitandi greiddar atvinnuleysisbætur á grundvelli laga um atvinnuleysistryggingar, með síðari breytingum.
Á gildistíma samnings skv. 1. mgr. ber viðkomandi atvinnuleitanda að vera í reglulegum samskiptum við ráðgjafa Vinnumálastofnunar og/eða aðra þjónustuaðila eftir því sem við á. Ekki er gerð krafa um að viðkomandi atvinnuleitandi sé í vikri atvinnuleit á gildistíma samnings skv. 1. mgr.
Gildistími samnings skv. 1. mgr. getur að hámarki verið þrír mánuðir. Óheimilt er að framlengja samning vegna sama atvinnuleitanda.
Sá tími sem starfsendurhæfing á grundvelli starfsendurhæfingarsamnings skv. 1. mgr. stendur yfir telst ekki til ávinnslutímabils skv. 15. eða 19. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. einnig e. lið 1. mgr. 13. gr. og e. lið 1. mgr. 18. gr. laganna.
7. gr.
Sjálfboðaliðastarf.
Vinnumálastofnun er heimilt að gera sérstakan samning við frjáls félagasamtök um þátttöku atvinnuleitanda sem er tryggður innan atvinnuleysistryggingakerfisins í sjálfboðaliðastarfi, þar með talin frjáls félagasamtök sem hafa milligöngu um sjálfboðaliðastörf í öðrum aðildarríkjum að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið, enda telst sjálfboðaliðastarfið vinnumarkaðsúrræði skv. b. lið 12. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir, með síðari breytingum, að mati ráðgjafa Vinnumálastofnunar. Vinnumálastofnun, hlutaðeigandi félagasamtök og viðkomandi atvinnuleitandi skulu undirrita samninginn. Með frjálsum félagasamtökum er í þessu sambandi átt við félagasamtök sem starfa að góðgerðar- og/eða mannúðarmálum í þágu almannahagsmuna og eru ekki rekin í hagnaðarskyni auk þess að vera undanþegin skattskyldu skv. 4. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt. Með undirritun sinni skuldbindur viðkomandi atvinnuleitandi sig til að taka þátt í sjálfboðaliðastarfi sem hann hefur valið sér. Þá skuldbinda hlutaðeigandi félagasamtök sig með undirritun sinni til að sjá til þess að atvinnuleitandinn sé slysatryggður við sjálfboðaliðastarfið. Á gildistíma slíks samnings fær viðkomandi atvinnuleitandi greiddar atvinnuleysisbætur á grundvelli laga um atvinnuleysistryggingar, með síðari breytingum.
Hlutaðeigandi félagasamtök skulu tilnefna sérstakan tengilið sem skal vera í samskiptum við ráðgjafa Vinnumálastofnunar á gildistíma samnings skv. 1. mgr. eftir því sem þörf krefur. Viðkomandi atvinnuleitandi skal einnig vera í reglulegum samskiptum við ráðgjafa Vinnumálastofnunar á gildistíma samnings. Viðkomandi atvinnuleitandi skal vera í virkri atvinnuleit á gildistíma samnings og vera reiðubúinn að taka starfi sem honum kann að bjóðast á gildistímanum.
Í þeim tilvikum þegar um er að ræða samning um sjálfboðaliðastarf atvinnuleitanda í öðru aðildarríki að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið gildir ákvæði um atvinnuleit í öðru aðildarríki samkvæmt VIII. kafla laga um atvinnuleysistryggingar og gefur Vinnumálastofnun út viðeigandi vottorð til staðfestingar á rétti viðkomandi atvinnuleitanda til atvinnuleysisbóta meðan á sjálfboðaliðastarfinu stendur.
Sá tími sem þátttaka atvinnuleitanda í sjálfboðaliðastarfi stendur yfir á grundvelli samnings skv. 1. mgr. telst ekki til ávinnslutímabils skv. 15. eða 19. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. einnig e. lið 1. mgr. 13. gr. og e. lið 1. mgr. 18. gr. laganna.
III. KAFLI
Styrkir úr Atvinnuleysistryggingasjóði
vegna þátttöku atvinnuleitenda í vinnumarkaðsaðgerðum.
8. gr.
Starfsþjálfun.
Vinnumálastofnun er heimilt að gera samning við fyrirtæki eða stofnun um ráðningu atvinnuleitanda, sem telst tryggður innan atvinnuleysistryggingakerfisins, í starfsþjálfun hjá fyrirtækinu eða stofnuninni enda telst ráðningin vinnumarkaðsúrræði skv. b. lið 1. mgr. 12. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir, með síðari breytingum, að mati ráðgjafa Vinnumálastofnunar. Vinnumálastofnun, hlutaðeigandi fyrirtæki eða stofnun og viðkomandi atvinnuleitandi skulu undirrita samninginn. Með undirritun sinni skuldbindur viðkomandi atvinnuleitandi sig til að taka þátt í þeirri starfsþjálfun sem honum ber á grundvelli samningsins. Jafnframt skuldbindur Vinnumálastofnun sig með undirritun sinni til að greiða styrk úr Atvinnuleysistryggingasjóði skv. 2. eða 3. mgr. til hlutaðeigandi fyrirtækis eða stofnunar. Þá skuldbindur hlutaðeigandi fyrirtæki eða stofnun sig með undirritun sinni til að greiða viðkomandi atvinnuleitanda laun samkvæmt ákvæðum gildandi kjarasamnings. Markmiðið er að atvinnuleitandinn fái tækifæri til að þjálfa sig í þeirri starfsgrein sem fyrirtækið eða stofnunin starfar innan til að auka hæfni sína til slíkra starfa á vinnumarkaði enda sé hann reiðubúinn að ráða sig til framtíðarstarfa innan starfsgreinarinnar.
Hafi viðkomandi atvinnuleitandi fengið greiddar atvinnuleysisbætur samtals í tólf mánuði eða lengur þegar samningur skv. 1. mgr. er gerður er Vinnumálastofnun heimilt að greiða styrk til handa hlutaðeigandi vinnuveitanda á grundvelli samningsins sem nemur fjárhæð grunnatvinnuleysisbóta samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar í hlutfalli við starfshlutfall viðkomandi atvinnuleitanda auk 8% mótframlags af styrkfjárhæð í lífeyrissjóð í allt að sex mánuði.
Hafi viðkomandi atvinnuleitandi fengið greiddar atvinnuleysisbætur samtals skemur en í tólf mánuði þegar samningur skv. 1. mgr. er gerður er Vinnumálastofnun heimilt að greiða styrk til handa hlutaðeigandi vinnuveitanda á grundvelli samningsins sem nemur 50% af fjárhæð grunnatvinnuleysisbóta samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar í hlutfalli við starfshlutfall viðkomandi atvinnuleitanda auk 8% mótframlags af styrkfjárhæð í lífeyrissjóð í allt að sex mánuði.
Óheimilt er að framlengja gildistíma samnings skv. 1. mgr. vegna sama atvinnuleitanda nema atvinnuleitandinn hafi skerta starfsorku og nauðsynlegt sé að veita honum lengri tíma til þjálfunar að mati ráðgjafa Vinnumálastofnunar og er þá einungis heimilt að framlengja gildistíma samnings einu sinni í aðra sex mánuði að hámarki.
Skilyrði fyrir greiðslu styrks úr Atvinnuleysistryggingasjóði á grundvelli samnings skv. 1. mgr. eru meðal annars:
Samningur skv. 1. mgr. fellur úr gildi komi til slita á ráðningarsambandi milli hlutaðeigandi fyrirtækis eða stofnunar og viðkomandi atvinnuleitanda á gildistíma samningsins. Fellur þá jafnframt niður heimild Vinnumálastofnunar til greiðslu styrks samkvæmt ákvæði þessu. Hið sama gildir séu skilyrði fyrir greiðslu styrks úr Atvinnuleysistryggingasjóði samkvæmt ákvæði þessu ekki lengur uppfyllt að mati ráðgjafa Vinnumálastofnunar eða ef staðfesting á launagreiðslu til viðkomandi atvinnuleitanda hefur ekki fylgt með reikningi hlutaðeigandi fyrirtækis eða stofnunar til Vinnumálastofnunar vegna greiðslu styrks á grundvelli samnings skv. 1. mgr.
Hlutaðeigandi fyrirtæki eða stofnun skal tilnefna sérstakan tengilið sem skal vera í samskiptum við ráðgjafa Vinnumálastofnunar á gildistíma samnings eftir því sem þörf krefur. Ekki er gerð krafa um að viðkomandi atvinnuleitandi sé í virkri atvinnuleit á gildistíma samnings skv. 1. mgr.
Sá tími sem starfsþjálfun viðkomandi atvinnuleitanda stendur yfir á grundvelli samnings skv. 1. mgr. telst hvorki til ávinnslutímabils skv. 15. eða 19. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, með síðari breytingum, sbr. einnig e. lið 1. mgr. 13. gr. og e. lið 1. mgr. 18. gr. laganna, né til þess tímabils sem heimilt er að greiða viðkomandi atvinnuleitanda atvinnuleysisbætur skv. 29. gr. sömu laga.
9. gr.
Verkþjálfun.
Vinnumálastofnun er heimilt að gera samning við sérstök verkþjálfunarsetur sem ekki eru rekin í hagnaðarskyni um þátttöku atvinnuleitanda, sem telst tryggður innan atvinnuleysistryggingakerfisins, í verkþjálfun hjá hlutaðeigandi verkþjálfunarsetri enda telst verkþjálfunin vinnumarkaðsúrræði skv. d. lið 12. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir, með síðari breytingum, að mati ráðgjafa Vinnumálastofnunar. Vinnumálastofnun, hlutaðeigandi verkþjálfunarsetur og viðkomandi atvinnuleitandi skulu undirrita samninginn. Með undirritun sinni skuldbindur viðkomandi atvinnuleitandi sig til að taka þátt í þeirri verkþjálfun sem honum ber á grundvelli samningsins. Jafnframt skuldbindur Vinnumálastofnun sig með undirritun sinni til að greiða styrk úr Atvinnuleysistryggingasjóði skv. 2. mgr. til hlutaðeigandi verkþjálfunarseturs. Ennfremur skuldbindur hlutaðeigandi verkþjálfunarsetur sig með undirritun sinni til að greiða viðkomandi atvinnuleitanda endurgjald sem nemur rétti hans til atvinnuleysisbóta samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar, með síðari breytingum, í hlutfalli við þátttöku hans í verkþjálfuninni. Þá skuldbindur hlutaðeigandi verkþjálfunarsetur sig með undirritun sinni til að sjá til þess að viðkomandi atvinnuleitandi sé slysatryggður við verkþjálfunina. Markmið samningsins er að viðkomandi atvinnuleitandi fái tækifæri til að þjálfa sig og undirbúa fyrir þátttöku á vinnumarkaði, meðal annars með markvissri þjálfun.
Á gildistíma samnings skv. 1. mgr. er Vinnumálastofnun heimilt að greiða hlutaðeigandi verkþjálfunarsetri styrk sem nemur fjárhæð grunnatvinnuleysisbóta samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar, með síðari breytingum.
Gildistími samnings skv. 1. mgr. getur að hámarki verið tólf mánuðir en óheimilt er að framlengja gildistíma samnings vegna sama atvinnuleitanda nema nauðsynlegt sé að veita honum lengri tíma til þjálfunar að mati ráðgjafa Vinnumálastofnunar og er þá einungis heimilt að framlengja gildistíma samnings einu sinni í aðra sex mánuði að hámarki.
Hlutaðeigandi verkþjálfunarsetur skal tilnefna sérstakan tengilið sem skal vera í samskiptum við ráðgjafa Vinnumálastofnunar á gildistíma samnings eftir því sem þörf krefur. Jafnframt ber viðkomandi atvinnuleitanda að vera í reglulegum samskiptum við ráðgjafa Vinnumálastofnunar á gildistíma samnings. Ekki er gerð krafa um að viðkomandi atvinnuleitandi sé í virkri atvinnuleit á gildistíma samnings skv. 1. mgr.
Sá tími sem verkþjálfun viðkomandi atvinnuleitanda stendur yfir á grundvelli samnings skv. 1. mgr. telst hvorki til ávinnslutímabils skv. 15. eða 19. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, með síðari breytingum, sbr. einnig e. lið 1. mgr. 13. gr. og e. lið 1. mgr. 18. gr. laganna, né til þess tímabils sem heimilt er að greiða viðkomandi atvinnuleitanda atvinnuleysisbætur skv. 29. gr. sömu laga.
10. gr.
Frumkvöðlastarf innan fyrirtækis eða stofnunar.
Vinnumálastofnun er heimilt að gera sérstakan frumkvöðlasamning við fyrirtæki eða stofnun um ráðningu atvinnuleitanda, sem telst tryggður innan atvinnuleysistryggingakerfisins, til að vinna að nýrri viðskiptahugmynd fyrirtækisins eða stofnunarinnar í tengslum við nýsköpunarverkefni eða vöruþróunarverkefni enda telst ráðningin vinnumarkaðsúrræði skv. b. lið 1. mgr. 12. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir, með síðari breytingum, að mati ráðgjafa Vinnumálastofnunar. Vinnumálastofnun, hlutaðeigandi fyrirtæki eða stofnun og viðkomandi atvinnuleitandi skulu undirrita samninginn. Með undirritun sinni skuldbindur viðkomandi atvinnuleitandi sig til að sinna þeim verkefnum sem honum ber á grundvelli samningsins. Jafnframt skuldbindur Vinnumálastofnun sig með undirritun sinni til að greiða styrk úr Atvinnuleysistryggingasjóði skv. 2. mgr. til hlutaðeigandi fyrirtækis eða stofnunar. Þá skuldbindur hlutaðeigandi fyrirtæki eða stofnun sig með undirritun sinni til að greiða viðkomandi atvinnuleitanda laun samkvæmt ákvæðum gildandi kjarasamnings. Með undirritun sinni skuldbindur hlutaðeigandi fyrirtæki eða stofnun sig jafnframt til að skila skýrslu um árangur og stöðu verkefnisins við lok gildistíma samningsins til Vinnumálastofnunar og þess aðila sem vottaði um nýnæmi verkefnisins við gerð samningsins, eftir því sem við á, sbr. 3. mgr. Við lok gildistíma samnings skal hlutaðeigandi fyrirtæki eða stofnun veita Vinnumálastofnun umsögn um störf viðkomandi atvinnuleitanda hjá fyrirtækinu eða stofnuninni, eftir því sem við á.
Á gildistíma samnings skv. 1. mgr. er Vinnumálastofnun heimilt að greiða hlutaðeigandi fyrirtæki eða stofnun styrk sem nemur fjárhæð grunnatvinnuleysisbóta samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar, með síðari breytingum, í hlutfalli við starfshlutfall viðkomandi atvinnuleitanda auk 8% mótframlags af styrkfjárhæð í lífeyrissjóð. Þegar um er að ræða samning skv. 1. mgr. er Vinnumálastofnun heimilt að stöðva greiðslur til hlutaðeigandi fyrirtækis eða stofnunar samkvæmt ákvæði þessu ef ljóst þykir að mati ráðgjafa Vinnumálastofnunar að það nýsköpunar- eða vöruþróunarverkefni sem um ræðir hverju sinni muni ekki skila þeim árangri sem vænst var þegar samningurinn var gerður. Áður en greiðslur eru stöðvaðar skal gefa fyrirtækinu eða stofnuninni kost á að koma á framfæri við Vinnumálastofnun mati sínu á árangri verkefnisins sem um ræðir hverju sinni til lengri tíma litið.
Vinnumálastofnun er heimilt að óska eftir að Nýsköpunarmiðstöð Íslands og/eða aðrir þar til bærir aðilar að mati ráðgjafa Vinnumálastofnunar votti um nýnæmi þess verkefnis sem um ræðir hverju sinni samkvæmt nánari reglum þar um. Við lok gildistíma samnings skv. 1. mgr. skal fyrirtækið eða stofnunin skila skýrslu um árangur og stöðu verkefnisins til Vinnumálastofnunar og þess aðila sem vottaði um nýnæmi verkefnisins við gerð samningsins, eftir því sem við á. Jafnframt er það skilyrði að verkefnið verði talið líklegt til að veita atvinnuleitandanum framtíðarstarf að mati ráðgjafa Vinnumálastofnunar og að ráðning atvinnuleitandans feli í sér aukningu á starfsmannafjölda hlutaðeigandi fyrirtækis eða stofnunar.
Ekki er gerð krafa um að viðkomandi atvinnuleitandi sé í virkri atvinnuleit á gildistíma samnings skv. 1. mgr.
Gildistími samnings skv. 1. mgr. skal ekki vera lengri en sex mánuðir. Heimilt er að framlengja gildistíma samningsins vegna sama atvinnuleitanda að hámarki í aðra sex mánuði að fenginni umsögn þess aðila er vottaði um nýnæmi verkefnisins við gerð samningsins, eftir því sem við á, enda liggi fyrir skýrsla um árangur og stöðu verkefnisins skv. 3. mgr. Hlutaðeigandi fyrirtæki eða stofnun ber auk þess við lok gildistíma hins framlengda samnings að skila annarri skýrslu skv. 3. mgr.
Sá tími sem ráðning atvinnuleitanda stendur yfir á grundvelli samnings skv. 1. mgr. telst hvorki til ávinnslutímabils skv. 15. eða 19. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, með síðari breytingum, sbr. einnig e. lið 1. mgr. 13. gr. og e. lið 1. mgr. 18. gr. laganna, né til þess tímabils sem heimilt er að greiða viðkomandi atvinnuleitanda atvinnuleysisbætur skv. 29. gr. sömu laga.
11. gr.
Sérstök átaksverkefni.
Vinnumálastofnun er heimilt að gera samning við fyrirtæki, stofnun eða frjáls félagasamtök um ráðningu atvinnuleitanda, sem telst tryggður innan atvinnuleysistryggingakerfisins, til að starfa við sérstök tímabundin átaksverkefni sem eru umfram lögbundin og venjuleg umsvif hlutaðeigandi fyrirtækis, stofnunar eða félagasamtaka enda telst ráðningin vinnumarkaðsúrræði skv. b. lið 1. mgr. 12. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir, með síðari breytingum, að mati ráðgjafa Vinnumálastofnunar. Vinnumálastofnun, hlutaðeigandi fyrirtæki, stofnun eða félagasamtök og viðkomandi atvinnuleitandi skulu undirrita samninginn. Með undirritun sinni skuldbindur viðkomandi atvinnuleitandi sig til að sinna þeim verkefnum sem honum ber á grundvelli samningsins. Jafnframt skuldbindur Vinnumálastofnun sig með undirritun sinni til að greiða styrk úr Atvinnuleysistryggingasjóði skv. 2. eða 3. mgr. til hlutaðeigandi fyrirtækis, stofnunar eða félagasamtaka. Þá skuldbindur hlutaðeigandi fyrirtæki, stofnun eða félagasamtök sig með undirritun sinni til að greiða viðkomandi atvinnuleitanda laun samkvæmt ákvæðum gildandi kjarasamnings. Við lok gildistíma samnings skal hlutaðeigandi fyrirtæki, stofnun eða félagasamtök veita Vinnumálastofnun umsögn um störf viðkomandi atvinnuleitanda hjá fyrirtækinu, stofnuninni eða félagasamtökunum, eftir því sem við á.
Hafi viðkomandi atvinnuleitandi fengið greiddar atvinnuleysisbætur samtals í tólf mánuði eða lengur þegar samningur skv. 1. mgr. er gerður er Vinnumálastofnun heimilt að greiða styrk til handa hlutaðeigandi vinnuveitanda á grundvelli samningsins sem nemur fjárhæð grunnatvinnuleysisbóta samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar í hlutfalli við starfshlutfall viðkomandi atvinnuleitanda auk 8% mótframlags af styrkfjárhæð í lífeyrissjóð.
Hafi viðkomandi atvinnuleitandi fengið greiddar atvinnuleysisbætur samtals skemur en í tólf mánuði þegar samningur skv. 1. mgr. er gerður er Vinnumálastofnun heimilt að greiða styrk til handa hlutaðeigandi vinnuveitanda á grundvelli samningsins sem nemur 50% af fjárhæð grunnatvinnuleysisbóta samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar í samræmi við starfshlutfall viðkomandi atvinnuleitanda auk 8% mótframlags í lífeyrissjóð.
Heimilt er að gera samning skv. 1. mgr. að hámarki til sex mánaða og óheimilt er að framlengja gildistíma samningsins vegna sama atvinnuleitanda.
Skilyrði fyrir greiðslu styrks á grundvelli samnings skv. 1. mgr. eru meðal annars:
Samningur skv. 1. mgr. fellur úr gildi komi til slita á ráðningarsambandi milli hlutaðeigandi fyrirtækis, stofnunar eða félagasamtaka og viðkomandi atvinnuleitanda á gildistíma samningsins. Fellur þá jafnframt niður heimild Vinnumálastofnunar til greiðslu styrks samkvæmt ákvæði þessu. Hið sama gildir séu skilyrði fyrir greiðslu styrks úr Atvinnuleysistryggingasjóði samkvæmt ákvæði þessu ekki lengur uppfyllt að mati ráðgjafa Vinnumálastofnunar eða ef staðfesting á launagreiðslu til viðkomandi atvinnuleitanda hefur ekki fylgt með reikningi hlutaðeigandi fyrirtækis, stofnunar eða félagasamtaka til Vinnumálastofnunar vegna greiðslu styrks á grundvelli samnings skv. 1. mgr.
Hlutaðeigandi fyrirtæki, stofnun eða félagasamtök skulu tilnefna sérstakan tengilið sem skal vera í samskiptum við ráðgjafa Vinnumálastofnunar á gildistíma samnings eftir því sem þörf krefur. Ekki er gerð krafa um að viðkomandi atvinnuleitandi sé í virkri atvinnuleit á gildistíma samnings skv. 1. mgr.
Sá tími sem þátttaka atvinnuleitanda í átaksverkefni stendur yfir á grundvelli samnings skv. 1. mgr. telst hvorki til ávinnslutímabils skv. 15. eða 19. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. einnig e. lið 1. mgr. 13. gr. og e. lið 1. mgr. 18. gr. laganna, né til þess tímabils sem heimilt er að greiða viðkomandi atvinnuleitanda atvinnuleysisbætur skv. 29. gr. sömu laga.
12. gr.
Starfstengt nám og námskeið.
Vinnumálastofnun er heimilt að greiða styrk úr Atvinnuleysistryggingasjóði til atvinnuleitanda sem er tryggður innan atvinnuleysistryggingakerfisins vegna þátttöku hans í starfstengdu námi eða námskeiði sem viðurkennt er sem vinnumarkaðsúrræði, sbr. a. eða d. lið 1. mgr. 12. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir að mati ráðgjafa Vinnumálastofnunar, sbr. einnig reglugerð um nám og námskeið sem eru viðurkennd sem vinnumarkaðsúrræði, með síðari breytingum. Styrkurinn skal að hámarki nema 50% af námskeiðsgjaldi en skal þó aldrei vera hærri en 70.000 kr. á ári til hvers atvinnuleitanda. Einungis er heimilt að veita hverjum atvinnuleitanda styrk einu sinni vegna sama námskeiðs.
Skilyrði fyrir veitingu styrks skv. 1. mgr. er að líkur séu á að hið starfstengda nám eða námskeið komi til með að nýtast atvinnuleitandanum við atvinnuleit þar sem það sé til þess fallið að skila honum árangri við að finna sér starf að mati ráðgjafa Vinnumálastofnunar.
IV. KAFLI
Búferlastyrkir úr Atvinnuleysistryggingasjóði.
13. gr.
Búferlastyrkir.
Vinnumálastofnun er heimilt að greiða sérstaka búferlastyrki vegna kostnaðar við búferlaflutning atvinnuleitanda sem er tryggður innan atvinnuleysistryggingakerfisins og fjölskyldu hans, sem hefur skráð lögheimili á sama stað og hann, eftir því sem við á. Í því sambandi er miðað við búferlaflutning innanlands frá því sveitarfélagi þar sem atvinnuleitandi hefur skráð lögheimili sitt til þess sveitarfélags þangað sem hann flytur lögheimilið í því skyni að sækja vinnu hjá nýjum vinnuveitanda sem hefur sannanlega ráðið hann til starfa. Búferlastyrkur samkvæmt ákvæði þessu getur jafnframt náð til kostnaðar við flutning á búslóð viðkomandi atvinnuleitanda og fjölskyldu hans, sem hefur skráð lögheimili á sama stað og hann, eftir því sem við á.
Þrátt fyrir 1. mgr. eru búferlastyrkir ekki greiddir vegna kostnaðar við búferlaflutning atvinnuleitanda og fjölskyldu hans, sem hefur skráð lögheimili á sama stað og hann, eftir því sem við á, innan höfuðborgarsvæðisins.
Skilyrði búferlastyrks eru meðal annars:
Í sérstökum undantekningartilvikum er Vinnumálastofnun heimilt að greiða búferlastyrk án þess að öll skilyrði 3. mgr. séu uppfyllt enda hafi stofnunin metið aðstæður viðkomandi atvinnuleitanda heildstætt, sbr. þó 2. mgr.
Búferlastyrkur skal nema að hámarki 80% af kostnaði við búferlaflutning viðkomandi atvinnuleitanda og fjölskyldu hans, sem hefur skráð lögheimili á sama stað og hann, eftir því sem við á, sem og/eða búslóð þeirra til þess sveitarfélags þar sem hin nýja starfsstöð er staðsett.
Þrátt fyrir 5. mgr. skal hámarksfjárhæð búferlastyrks aldrei vera hærri en sem nemur hámarksfjárhæð tekjutengdra atvinnuleysisbóta skv. 6. mgr. 32. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.
V. KAFLI
Ýmis ákvæði.
14. gr.
Umsókn um gerð samnings.
Atvinnuleitendur, fyrirtæki, stofnanir eða frjáls félagasamtök skulu sækja um gerð samninga skv. II. kafla til Vinnumálastofnunar. Umsókn skal vera skrifleg á þar til gerðum eyðublöðum og henni skulu fylgja nauðsynleg fylgigögn eftir því sem við á hverju sinni, svo sem lýsing á þeirri vinnumarkaðsaðgerð sem um ræðir, lýsing á viðskiptahugmynd eða vottorð um námsþátttöku.
Vinnumálastofnun er heimilt að óska eftir umsögn frá öðrum aðilum en um getur í 1. mgr. vegna einstakra umsókna um gerð samnings skv. II. kafla þegar ástæða er til að mati ráðgjafa stofnunarinnar.
15. gr.
Umsókn um styrk.
Atvinnuleitendur, fyrirtæki, stofnanir eða frjáls félagasamtök skulu sækja um gerð samninga skv. III. og IV. kafla til Vinnumálastofnunar. Umsóknin skal vera skrifleg á þar til gerðum eyðublöðum og henni skulu fylgja nauðsynleg fylgigögn eftir því sem við á hverju sinni, svo sem frumrit reikninga vegna kostnaðar atvinnuleitanda í tengslum við búferlaflutning, upplýsingar um laun og önnur starfskjör atvinnuleitanda eða vottorð um þátttöku atvinnuleitanda í námi eða námskeiði.
Vinnumálastofnun er heimilt að óska eftir umsögn frá öðrum aðilum en um getur í 1. mgr. vegna einstakra umsókna um styrki skv. III. og IV. kafla þegar ástæða er til að mati ráðgjafa stofnunarinnar.
16. gr.
Kæruheimild.
Heimilt er að kæra ákvarðanir Vinnumálastofnunar sem teknar eru á grundvelli reglugerðar þessarar til úrskurðanefndar velferðarmála innan þriggja mánaða frá því aðila máls var tilkynnt um ákvörðunina, sbr. 12. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, með síðari breytingum.
17. gr.
Viðurlög.
Brot á ákvæðum reglugerðar þessarar geta varðað viðurlögum skv. X. eða XI. kafla laga um atvinnuleysistryggingar, með síðari breytingum.
18. gr.
Gildistaka.
Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 62. og 64. gr. laga nr. 54/2006, um atvinnuleysistryggingar, með síðari breytingum, að fenginni umsögn stjórnar Atvinnuleysistryggingasjóðs, og 3. mgr. 12. gr. laga nr. 55/2006, um vinnumarkaðsaðgerðir, með síðari breytingum, að fenginni umsögn stjórnar Vinnumálastofnunar, öðlast gildi 1. janúar 2016. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 12/2009, um þátttöku atvinnuleitenda sem tryggðir eru innan atvinnuleysistryggingakerfisins í vinnumarkaðsaðgerðum og um búferlastyrki, með síðari breytingum.
Velferðarráðuneytinu, 16. desember 2015.
Eygló Harðardóttir
félags- og húsnæðismálaráðherra.
Hanna Sigr. Gunnsteinsdóttir.