Vinnueftirlit ríkisins fær á árunum 2002 og 2003 í sinn hlut til að standa straum af kostnaði vegna framkvæmdar laga nr. 46/1980, um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum með síðari breytingum, 0,048% af gjaldstofni tryggingagjalds, sem er allar tegundir launa eða þóknana fyrir starf, hverju nafni sem nefnist, sem skattskylt er skv. 1. tölul. A-liðar 7. gr. laga nr. 75/1981, um tekjuskatt og eignarskatt með síðari breytingum.
Reglugerð þessi sem sett er samkvæmt heimild í 1. tölul. 2. mgr. 3. gr. laga nr. 113/1990, um tryggingagjald með síðari breytingum, öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð nr. 941/2000, um hlut Vinnueftirlits ríkisins í tryggingagjaldi launagreiðenda á árinu 2001.