REGLUGERÐ
um útgáfu húsbréfa á árinu 1999 fyrir Íbúðalánasjóð.
1. gr.
Félagsmálaráðherra hefur ákveðið, á grundvelli laga um húsnæðismál nr. 44/1998, að Íbúðalánasjóður haldi áfram útgáfu 1. og 2. flokks húsbréfa 1998, sem hófst á árinu 1998 skv. reglugerð nr. 4/1998 og með síðari breytingu nr. 638/1998. Í samræmi við 6. mgr. 52. gr. laga nr. 44/1998 tekur Íbúðalánasjóður við hlutverki, réttindum, öllum eignum, skyldum og skuldbindingum Húsnæðisstofnunar ríkisins og verður því útgefandi húsbréfanna.
Húsbréfin í hverjum flokki skulu gefin út í þremur undirflokkum A, B og C. Í undirflokki A skal hvert húsbréf vera að fjárhæð 1.000.000 kr., í undirflokki B 100.000 kr. og í undirflokki C 10.000 kr. Vextir í 1. og 2. flokki 1998 eru 4,75% á ári. Lánstími bréfa í 1. flokki skal vera 25 ár og í 2. flokki 40 ár.
Samanlögð fjárhæð samþykktra skuldabréfaskipta úr 1. og 2. flokki 1998 skal ekki vera umfram 23.315 milljónir króna á árinu 1999 m.v. reiknað markaðsvirði húsbréfanna. Þannig skal samanlögð fjárhæð samþykktra skuldabréfaskipta 1998 og 1999 úr 1. og 2. flokki húsbréfa 1998 ekki fara umfram 42.815 milljónir króna m.v. fyrrnefnt reinað markaðsvirði.
Reiknað markaðsvirði skal ákvarðað þannig að mánaðarlega verði fundið sennilegt nafnverð þeirra húsbréfa, sem skipta á fyrir fasteignaveðbréf og skal það ákvarðast með hliðsjón af meðaltali reiknaðs verðs húsbréfa í viðkomandi mánuði. Þannig fundið reiknað nafnverð húsbréfa skal síðan reikna til markaðsvirðis miðað við meðalviðskiptaverð viðkomandi flokks á Verðbréfaþingi Íslands, að viðbættum 6 punktum (0,06%). Hafi engin viðskipti átt sér stað með viðkomandi húsbréfaflokk í þeim mánuði, sem útreikningar ná til, skal reikna meðalviðskiptaverð út frá ávöxtunarkröfu sambærilegs húsbréfaflokks á Verðbréfaþinginu, að viðbættum 6 punktum.
2. gr.
Húsbréf eru verðtryggð miðað við vísitölu neysluverðs, skv. lögum um vísitölu neysluverðs nr. 12/1995 og vaxtalögum nr. 25/1987, með síðari breytingum. Grunnvísitala flokkanna er vísitala desembermánaðar 1997.
3. gr.
Íbúðalánasjóður greiðir verðbætur á höfuðstól, vexti og vaxtavexti húsbréfa skv. breytingum á vísitölu neysluverðs frá útgáfudegi bréfanna, 15. desember 1997 til gjalddaga. Höfuðstóll, verðbætur, vextir og vaxtavextir greiðast eftir á í einu lagi. Nafnvextir eru óbreytanlegir allan tímann og reiknast frá útgáfudegi 15. desember 1997.
4. gr.
Íbúðalánasjóður innleysir og endurgreiðir húsbréf flokkanna að fullu skv. útdrætti á föstum gjalddögum, sem eru 15. mars, 15. júní, 15. september og 15. desember ár hvert. Fyrsti gjalddagi er 15. september 1998. Húsbréfaflokkunum skal lokað eigi síðar en 15. mars 2000. Dregin verða út númer úr gildum óinnleystum húsbréfum, sem afgreidd hafa verið þremur mánuðum fyrir viðkomandi gjalddaga. Í hverjum útdrætti skal draga út húsbréf fyrir þá fjárhæð, sem svarar næst til endurgreiðslu jafngreiðsluláns með þeim vöxtum sem um flokkana gilda, lánstíma sem eftir er og eftirstöðvum. Númer útdreginna húsbréfa skulu birt í Lögbirtingablaði í síðasta lagi tveimur mánuðum fyrir gjalddaga.
Verði húsbréf ekki dregin út, greiðast þau að fullu á lokagjalddaga. Lokagjalddagi 1. flokks er 15. desember 2022 og 2. flokks 15. desember 2037. Húsbréf verða ekki innleyst að hluta.
5. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt 22. gr., og 29. gr. laga um húsnæðismál nr. 44/1998 öðlast þegar gildi og leysir af hólmi reglugerðir nr. 4/1998 og 638/1998.
Félagsmálaráðuneytinu, 2. janúar 1999.
Páll Pétursson.
Ingi Valur Jóhannsson.