1. gr.
Fjárhæðir sem nefndar eru í reglugerðinni skulu breytast þannig:
Í 3. mgr. 11. gr. komi 12.600 kr. í stað 10.800 kr. (1. fl.), 9.700 kr. í stað 8.300 kr. (2. fl.) og 7.400 kr. í stað 6.300 kr. (3. fl.).
Í 1. mgr. 12. gr. komi 780 kr. í stað 670 kr.
2. gr.
4. mgr. 11. gr. orðist svo:
Greiðslur fara fram hjá ríkisfjárhirslu.
3. gr.
Reglugerð þessi sem sett er með stoð í lögum um málefni fatlaðra, nr. 59/1992, með síðari breytingum, öðlast gildi 1. janúar 2007.
Félagsmálaráðuneytinu, 8. desember 2006.
Magnús Stefánsson.
Óskar Páll Óskarsson.