1. gr.
Á eftir 4. gr. kemur 4. gr. a sem orðast svo:
Þátttaka í getraunum einskorðast við að geta sér til um úrslit leiks eða atviks. Ekki er unnt að geta sér til um úrslit leiks sem þegar er hafinn eða atvik sem þegar hefur orðið. Hafi Íslenskar getraunir ekki lokað fyrir sölu leiks, af einhverjum orsökum, verður litið svo á að viðburðinum hafi ekki lokið innan umferðar hjá þátttakanda sem tók þátt eftir að keppni hófst. Þátttakandi mun við þessar aðstæður fá þátttökuna endurgreidda með vinningsstuðli 1,00, óháð því hvernig raunveruleg úrslit urðu. Í getraunaleiknum 1X2 fær þátttakandi getraunaseðilinn endurgreiddan. Til grundvallar mati á því hvort keppni hafi verið hafin verður einungis stuðst við tímaskráningu í aðaltölvum Íslenskrar getspár og Íslenskra getrauna.
2. gr.
Á eftir 35. gr. kemur 35. gr. a sem orðast svo:
Félaginu er heimilt að starfrækja viðbótarleik við Lengjuna sem nefnist "Spilað í beinni". Heimildin gildir til 1. desember 2006. Leikurinn felur það í sér að hægt er að geta sér til um úrslit íþróttakappleikja á meðan viðkomandi íþróttakappleikur stendur yfir. Í þessari tegund leiksins eru stuðlar síbreytilegir eftir framgangi kappleiksins hverju sinni og ráðast af atvikum, svo sem skoruðum mörkum, gengi liðs o.s.frv. Sá stuðull, sem skráður er í aðaltölvu Íslenskrar getspár á því tímamarki sem ágiskun fer fram, gildir um leik þátttakanda.
Félagið hefur heimild til þess að stöðva getraunaleikinn tímabundið á hvaða tímamarki sem er meðan á kappleik stendur, t.d. ef svo virðist sem atvik geti orðið er áhrif getur haft að mati félagsins á útreikning stuðuls viðkomandi íþróttakappleiks, svo sem skorað mark, rautt spjald gefið, vítaspyrna tekin o.s.frv.
Í þessari tegund leiks gilda að öðru leyti sömu reglur og gilda um Lengjuna með þeirri undantekningu sem leiðir af eðli leiksins að heimilt sé að geta sér til um úrslit viðkomandi íþróttakappleiks meðan á honum stendur.
3. gr.
Reglugerð þessi sem sett er samkvæmt heimild í 5. gr. laga um getraunir nr. 59 29. maí 1972 öðlast þegar gildi.
Dóms- og kirkjumálaráðuneytinu, 6. júní 2006.
Björn Bjarnason.
Fanney Óskarsdóttir.