Dómsmálaráðuneyti

1125/2024

Reglugerð um breytingu á reglugerð um íslensk vegabréf nr. 560/2009.

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 1. gr. reglugerðarinnar:

  1. Nýr málsliður bætist við 1. mgr.: Þó er í stað vegabréfs einnig heimilt að framvísa við komu til landsins og þegar ferðast er innan Evrópska efnahagssvæðisins nafnskírteini sem er ferða­skilríki samkvæmt lögum nr. 55/2023 um nafnskírteini.
  2. Á eftir orðinu "vegabréfi" í 3. mgr. koma orðin: eða nafnskírteini sem er ferðaskilríki sam­kvæmt lögum nr. 55/2023 um nafnskírteini.

 

2. gr.

2. málsl. 2. mgr 13. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Umsækjandi getur jafnframt fengið vegabréf afhent á framleiðslustað vegabréfs og hjá þeim aðilum sem Þjóðskrá Íslands hefur falið að afhenda vegabréf fyrir hönd stofnunarinnar.

 

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 11. gr. laga um vegabréf nr. 136/1998 og 12. gr. laga nr. 55/2023 um nafnskírteini, öðlast þegar gildi.

 

Dómsmálaráðuneytinu, 8. október 2024.

 

Guðrún Hafsteinsdóttir.

Haukur Guðmundsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica