Veflestur er þjónusta ætluð þeim sem einhverra hluta vegna eiga erfitt með að lesa texta af skjá
Dómsmálaráðuneyti

1539/2022

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 560/2009 um íslensk vegabréf.

1. gr.

Við 1. mgr. 23. gr. reglugerðarinnar bætist nýr stafliður svohljóðandi:

  1. Útgefanda ökuskírteinis er heimilt, að fengnu samþykki umsækjanda, að sækja andlitsmynd og rithandarsýnishorn hans úr vegabréfaskrá og nota við útgáfu ökuskírteinis.

 

2. gr.

Lagastoð og gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 11. gr. laga nr. 136/1998 um vegabréf, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

 

Dómsmálaráðuneytinu, 12. desember 2022.

 

Jón Gunnarsson.

Bryndís Helgadóttir.

Prenta reglugerð

Þetta vefsvæði byggir á Eplica