1. gr.
Á eftir orðinu "skammbyssum" í 3. gr., flokki D, 1. málslið kemur: eða rifflum.
2. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 11. gr.:
a) |
Á eftir orðinu "skammbyssu" í fyrirsögn kemur: og riffli til iðkunar skotfimi. |
|
b) |
Á eftir orðinu "skammbyssu" í 1. mgr. kemur: eða hálfsjálfvirkan riffil. |
|
c) |
Á eftir orðinu "skammbyssu, þ.m.t. loftskammbyssu" í 2. mgr. kemur: og hálfsjálfvirkum riffli. |
3. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 39. gr. vopnalaga nr. 16, 25. mars 1998, öðlast þegar gildi.
Dómsmála- og mannréttindaráðuneytinu, 9. mars 2010.
Ragna Árnadóttir.
Skúli Þór Gunnsteinsson.